Komið þið sæl
Gleðilegt ár og takk fyrir samveruna á liðnu ári. Hér á Friðarlundi er allt komið í sína föstu rútínu eftir jólin og jólaundirbúninginn. í janúar á þorranum ætlum við að fjalla um gamla tíman og gamla siði t.d. hvernig leikföng léku börn sér með í gamla daga. Í vetur höfum við verið að vinna með dyggðirnar og í jan. er verið að vinna með dyggðina kurteisi sem fléttast inn í verkefnavinnuna. Ýmislegt er framundan á Friðarlundi við ætlum að fara að fara með börnin einu sinni í viku í íþróttahúsið Kór en það er ekki alveg komið á hreint hvenær við byrjum en það verður auglýst síðar. Á Bóndadaginn Föstudaginn 20. Jan. ætlum við að borða þorramat og mæta í lopapeysum þá er einnig öfum, bræðrum og frændum boðið í bóndakaffi á leikskólanum frá 15-16. Föstudaginn 27. Jan. er síðan söngstund í sal og þá er einnig litadagur og er hann hvítur að þessu sinni. Gaman væri að börnin mættu í einhverju hvítu. Mánudaginn 9. janúar byrjaði Lilja Margrét á Friðarlundi en Lilja var á Friðarlundi í haust. Lilja er leikskólakennari og vinnutími hennar er 8:30-15:15 nema á miðvikudögum er hún 8:30-14:00.
Nú er allra veðra von og því langar okkur að minna á að það komið sé með viðeigandi klæðnað í leikskólann bæði hlý föt og regnföt. Að lokum langar okkur svo að biðja ykkur um að fylla á fatakassana ef þarf.
Kær kveðja,
Inda, Lilja, Aldís og Gunni
10 okt.
Þá er haustdagskráinn hafin hjá okkur og við höfum nóg fyrir stafni alla daga enda dagskráin þétt og skemmtileg. Við minnum ykkur bara á að hafa hlý föt meðferðis í leikskólann. Reyndar hefur veðrið verið fallegt uppá síðkastið svo við getum lítið kvartað. Í dag fórum við í göngu með nýja göngufánann okkar sem við máluðum í síðustu viku. Við buðum yngri hópnum með þetta var skemmtileg ferð.
.jpg)
.jpg)
Vetrarstarfið að hefjast
Nú er dagskipulagið fyrir skólaárið 2011-2012 komið á vefinn undir Friðarlundur og „um deildina“. Við erum líka búin að setja inn á vefinn söngtexta sem við ætlum að styðjast við í vetur. Lögin verða þó mun fleiri sem við lærum í vetur en þetta er svona brot af því besta.
Ragnheiður Anna aðstoðarleikskólastjóri mun starfa sem deildastjóri þar til Indlaug kemu til starfa í október. Indlaug er með margra ára reynslu af leikskólastarfi og hlakkar okkur mikið til að fá hana inn í okkar hóp.
Einnig viljum við þakka Ingunni kærlega fyrir gott samstarf en hún var að fara í nám.
Síðustu vikur hafa farið í það að kynnast nýjum börnum og nýju starfsfólki og erum við öll að aðlagast mjög vel. Við sjáum fram á skemmtilegan og viðburðaríkan vetur en fyrst og fremst ætlum við að passa vel uppá hvort annað, vera góðir vinir og njóta þess að vera til. Þið eigið yndisleg börn sem okkur hlakkar mikið til að kynnast ennþá betur.
Þar sem kólnað hefur í veðri viljum við biðja ykkur um að huga að fatnaði barnanna þar sem við förum út allavega einu sinni á dag í vetur. Einnig viljum við biðja ykkur um að senda börnin í skóm (helst ekki reimuðum) sem auðvelt er að klæða sig í og úr þar sem það er hluti af sjálfshjálpinni að klæða sig sjálfur í og úr eftir útiveru. Mjög mikilvægt er að merkja föt barnanna vel og viljum við benda t.d á Rögn www.rogn.is eða Merkt www.merkt.is sem sérhæfa sig m.a. í nafnaborðum á föt. Það kemur fyrir að börnin eru að klæða sig úr og gleyma að setja fötin sín á réttan stað og þá hjálpar það mjög mikið þegar finna þarf rétta eigendur að fötin séu vel merkt.
Við viljum vekja athygli á því að það er í boði að koma með bækur, geisladiska og bangsa í leikskólann og biðjum við fólk einnig að merkja það vel sem börnin koma með. Á næstunni verður dótadagur í leikskólanum og verður hann auglýstur þegar nær dregurJ
Ekki hika við að hafa samband við okkur ef eitthvað er annað hvort í síma 570-4944 eða í gegnum tölvupóstinn okkar friðarlundur@kor.skolar.is. Að sjálfsögðu er ykkur velkomið að koma og spjalla við okkur á Friðarlundi eða panta viðtalstíma.
Hlökkum til vetrarins með ykkur
Ragnheiður Anna, Þóra Marý, Gunni, Aldís.