Listasmiðja
Listsköpun
Í heilsustefnunni er unnið markvisst með listsköpun á þann hátt að öll börn frá tveggja ára aldri fá skipulagðar stundir með fagstjóra í listum. Þessar stundir eru skipulagðar fyrirfram og tengjast bæði þeim þáttum sem prófaðir eru í Heilsubók barnsins og áherslum leikskóla.
Í leikskólanum er lögð áhersla á að börnin tjái sig frjálst og að sköpunargleðin fái að njóta sín. Sjálft sköpunarferlið skiptir meira máli en útkoman. Hvert barn fer með sínum hópi í listsköpun einu sinni í viku. Þar er unnið með fjölbreyttan efnivið úr náttúrunni og verðlaust efni af ýmsu tagi. Unnið er jafn með hópverkefni sem einstaklingsverkefni og þar gefst tækifæri til að þjálfa færni og læra nýja tækni. Frá maí til september færist vinna barnanna út þar sem unnið er með listsköpun úti í náttúrunni.
Ársáætlun í listum 2011-2012
Hreyfisalur
Hreyfing stuðlar að líkamlegri og andlegri vellíðan, snerpu og þoli. Í markvissri hreyfiþjálfun eflist alhliða þroski barnsins og barnið öðlast góða líkamsvitund. Markmiðið er að börnin öðlist gott úthald, örvi hjartslátt og blóðrás. Styrkja samhæfingu hreyfinga, jafnvægi og öryggi. Börn átti sig á rými, fjarlægðum, afstöðum og áttum þannig nær barnið þroska í rúmskynjun. Börnin læra að skynja líkama sinn og ná stjórn á hreyfingum sínum. Áhersla er lögð á slökun í lok hverrar stundar. Markmið með slökun er meðal annars að róa líkama og huga.
Í leikskólanum fær hvert barn markvissa hreyfistund einu sinni í viku, sem fagstjóri í hreyfingu sér um að skipuleggja og kenna. Unnið er með aldurskipta hópa sem auðveldar að bjóða upp á verkefni við hæfi. Frá maí til fyrsta september lengist útiveran og flytjast hreyfistundir út þar sem farið er í leiki og í ýmsar vettvangs–, ævintýra–, og gönguferðir.
Við viljum að börnin finni líkamlega vellíðan og að hreyfing verði stór þáttur í lífi barnanna bæði nú og síðar á ævinni. Hreyfing leiðir af sér aukna félagsfærni og leikgleði sem eflir vináttubönd.
Hér má sjá:
Hópa í hreyfingu og listum 2011-2012 á Friðarlundi
Ársáætlun í hreyfingu
|
September |
Jafnvægi, vöðvastyrkur, þol og þor |
|
Október |
Boltar, samhæfing, kasta, grípa, leikni/tækni, hittni og skráning í heilsubók |
|
Nóvember |
Þol, styrkur, læra reglur í leikjum og útsjónasemi |
|
Desember |
Jafnvægi, styrkur, þol, veltur og slökun |
|
Janúar |
Jafnvægi, stökk/hopp og vöðvastyrkur |
|
Febrúar |
Boltar, samhæfing, kasta, grípa og leikni/tækni |
|
Mars |
Styrkur, jafnvægi, veltur, stökk og skráning í heilsubók |
|
Apríl |
Þol, styrkur, læra reglur í leik og útsjónasemi |
|
Maí |
Úthaldsæfingar og þor |