Friðarlundur
Á deildinni í vetur eru 20 börn, 10 fædd 2008 og 10 fædd 2009. Starfsmenn deildarinnar munu vera Indlaug deildarstjóri (leikskólakennari), Gunnar leiðbeinandi, Aldís leiðbeinandi, Ragnheiður Anna (leikskólakennari/ aðstoðarleikskólastjóri) hún og Þóra Mary ( nemi á síðasta ári í þroskaþjálfun) skipta á milli sín einni stöðu.
Börnin fara einu sinni í viku í listasmiðju til Þóru þar sem lögð er áhersla á að börnin tjái sig frjálst og að sköpunargleðin fái að njóta sín. Í listum er unnið með fjölbreyttan efnivið úr náttúrunni og verðlaust efni af ýmsu tagi. Sjálft sköpunarferlið skiptir meira máli en útkoman.
Hanna Sóley tekur á móti börnunum einu sinni í viku í hreyfisalinn og þar er ávallt mikið líf og fjör. Áhersla er lögð á grófhreyfingar, styrk, þrek og þol. Markmiðið er að börnin öðlist gott úthald, örvi hjartslátt og blóðrás og síðan er lögð er áhersla á slökun í lok hverrar stundar.
Útivera er einu sinni til tvisvar á dag en hún býður upp á góða hreyfingu og er mikilvægur þáttur í leikskólauppeldi. Í útiverunni leika börnin sér mest frjálst og það er boðið upp á hefðbundið leikefni. Einnig er farið með börnin í styttri og lengri vettvangsferðir í nánasta umhverfi leikskólans einu sinni í viku þar sem verið er að læra á nánasta umhverfi og fara í útileiki. Yfir sumartímann er útiveran aukin umtalsvert, þá er boðið upp á mismunandi stöðvar með fjölbreyttum verkefnum við allra hæfi.
Hér má finna dagskipulag fyrir Friðarlund veturinn 2011-2012:
Dagskipulag
Hér má finna þá söngtexta sem við ætlum að læra í vetur:
Söngtextar
Hér fyrir neðan má sjá hópaskipan í hreyfingu og listum:
Hópar í hreyfingu og listum
Hér má finna upplýsingar fyrir foreldra varðandi Könnunarleikinn vinna með börnum fædd 2009
Könnunarleikurinn
Hér fyrir neðan má finna Hópa fyrir hópastarf börn fædd 2008 ásamt verkefnum fyrir okt:
Hópar fæddir 2008
Netfangið á Friðarlundi er: fridarlundur@kor.skolar.is
Beinn sími inn á lundinn er: 570-4944. Vinsamlegast hringið ekki í beina símann á milli 12:00-14:00, þá sofa börnin.
Endilega hafið samband ef það er eitthvað sem þið viljið spyrja um.
Barnavísnavefur með textum, hreyfingum og tóndæmum:
http://barnavisur.wikispaces.com/
inkunarorð Heilsuleikskólans Kórs er : heilbrigð sál í hraustum líkama.