Gæðalundur
Á deildinni í vetur eru 19 börn, 8 fædd 2007, 6 fædd 2008 og 5 fædd 2009. Starfsmenn deildarinnar munu vera Sverrir deildarstjóri (leikskólakennari), Sandra leiðbeinandi, Berglind leiðbeinandi.
Börnin fara einu sinni í viku í listasmiðju til Þóru þar sem lögð er áhersla á að börnin tjái sig frjálst og að sköpunargleðin fái að njóta sín. Í listum er unnið með fjölbreyttan efnivið úr náttúrunni og verðlaust efni af ýmsu tagi. Sjálft sköpunarferlið skiptir meira máli en útkoman.
Haukur tekur á móti börnunum einu sinni í viku í hreyfisalinn og þar er ávallt mikið líf og fjör. Áhersla er lögð á grófhreyfingar, styrk, þrek og þol. Markmiðið er að börnin öðlist gott úthald, örvi hjartslátt og blóðrás og síðan er lögð er áhersla á slökun í lok hverrar stundar.
Útivera er einu sinni til tvisvar á dag en hún býður upp á góða hreyfingu og er mikilvægur þáttur í leikskólauppeldi. Í útiverunni leika börnin sér mest frjálst og það er boðið upp á hefðbundið leikefni. Einnig er farið með börnin í styttri og lengri vettvangsferðir í nánasta umhverfi leikskólans einu sinni í viku þar sem verið er að læra á nánasta umhverfi og fara í útileiki. Yfir sumartímann er útiveran aukin umtalsvert, þá er boðið upp á mismunandi stöðvar með fjölbreyttum verkefnum við allra hæfi.
Hér má finna dagskipulag fyrir Gæðalundi veturinn 2011-2012:
Dagskipulag
Hér má finna þá söngtexta sem við ætlum að læra í vetur:
Söngtextar
Hér fyrir neðan má sjá hópaskipan í hreyfingu og listum:
Hópar í hreyfingu og listum
Hér má finna upplýsingar fyrir foreldra varðandi Könnunarleikinn vinna með börnum fædd 2009
Könnunarleikurinn
Hér fyrir neðan´er hópa skipan inn á deild
Hópar
Netfangið á Gæðalundur er: gaedalundur@kor.skolar.is
Beinn sími inn á lundinn er: 570-4948. Vinsamlegast hringið ekki í beina símann á milli 12:00-14:00, þá sofa börnin.
Endilega hafið samband ef það er eitthvað sem þið viljið spyrja um.
Barnavísnavefur með textum, hreyfingum og tóndæmum:
http://barnavisur.wikispaces.com/
inkunarorð Heilsuleikskólans Kórs er : heilbrigð sál í hraustum líkama.