Fréttir í janúar :)
Það hefur verið mikið um að vera hjá okkur á Gleðilundi eftir áramót. Við héldum þrettándann hátíðlegan með því að búa til álfahatta og vera með þá í þrettándasöngstund. Dótadagurinn 13. janúar heppnaðist mjög vel og allir krakkarnir skemmtu sér konunglega. Í tilefni bóndadagsins og þorrans erum við með aukna áherslu á fræðslu um gamla tímann. Við erum búin að lesa allskyns þjóðsögur um Búkollu, Gilitrutt, fleiri tröllasögur og síðan sögur um lagarfljótsorminn, álfa og allskyns önnur dýr. Þau eru búin að vera mjög áhugasöm og gerðu þau síðan verkefni með henni Hildi Ýr úr þessum ævintýrum. Fyrir bóndadaginn var Katrín með börnunum að gera glæsilega víkingahjálma sem þau voru síðan með í bóndakaffinu. Vel var mætt á bóndakaffið og það heppnaðist mjög vel. Hjá Þóru í listasmiðju hafa þau verið í verkefni um Búkollu og leikið sér það með legg og skel.
Börnin eru einnig hálfnuð með verkefni þar sem þau eru að búa til föt á snúrur í gluggunum á deildinni okkar. Hver snúra á sína eigin stafi. Finna þarf fyrsta hljóðið í orðinu á fatnaðinum og finna síðan hvaða snúra á stafinn fyrir hljóðið.
Á föstudögum er oftast nær það sem við köllum Stóraval. Þá er val með 2007 árgangum frá Kærleiks-, Tryggðar- og Gæðalundi. Þá hefur alltaf verið boðið upp á hreyfisal, ævintýralund, holukubba og ýmislegt á Gleðilundi. Nú er að bætast við að fara í Kórinn á gervigrasið. Við höfum því skipt deildinni í 3 hópa sem fara þá á þriggja vikna fresti á föstudögum í Kórinn og hina tvo föstudagana eru þau þá í Stóravali.
Sæl kæru foreldrar J
Við á Gleðilundi höfum ákveðið að setja saman í eitt fréttabréf til þess að sýna hvað við höfum gert margt skemmtilegt í haust.
Hér er hægt að nálgast fréttabréfið á pdf skjali en einnig sendi ég það á tölvupósti. Þar eru einnig hægt að sjá fleiri myndir.
Í ágúst bauð Þórdís okkur í heimsókn til sín og bauð okkur uppá samlokur og kökur. Þar fengum við að skoða heimilið hennar og leika okkur á trampolíninu í garðinum hjá henni. Þetta var mikið fjör og ævintýri. Skemmtilegt var að ferðast með strætisvagninum inn í Reykjavík og sjá heimilið hennar Þórdísar. Hér fyrir neðan má sjá mynd af þeim á leiðinni.

Við lærðum mikið um náttúruna og hvað við getum gert til að vernda náttúruna. Við týndum rusl, flokkuðum í sundur hvað af ruslinu er endurvinnanlegt. Í hópastarfi gerðum við tilraun með niðurbrot rusls í náttúrunni. Hvert barn valdi sér eitt rusl og setti það undir spýtu úti í garði. Við kíkjum svo reglulega á það og athugum hvað er að gerast með það. Við erum búinn að setja upp tvær moltutunnur, þar sem við setjum allan ávaxta og grænmetis úrgang. Einnig erum við með þrjár fötur úti í garði með grænmetis og ávaxtaúrgagni þar sem við erum að gera tilraun með hvernig það brotnar niður.Við erum komin langt með að búa til alveg hræðilega ljótt (flott) ruslaskrímsli úr ruslinu sem við höfum týnt úti.
Við fórum í skemmtilegar vettvangsferðir um allt Kórahverfi. Við fórum að heimilum allra barnanna og tókum mynd af þeim fyrir framan húsið sitt. Einnig bjuggum við til hverfið okkar á maskínupappír. Síðan föndruðum við húsið okkar og límdum á hverfið okkar.
7. október vorum við með bleikan dótadag. Börnin voru hvött til þess að koma í bleikum fötum til þess að vekja fólk til umhugsunar um brjóstakrabbamein. Börnin komu einnig með dót í leikskólann og léku sér með það nánast allan daginn. Við vorum rosalega ánægðar með krakkana því þau voru svo dugleg að skiptast á dótinu sínu og leyfa öðrum að prófa sitt dót.
Í byrjun október fóru krakkarnir með Hönnu Sóleyju og íþróttafræðinemunum hennar í Kórinn að sprikla. Þau lentu í þessu líka svaka “fína” veðri og voru bílar sendir í Kórinn til að sækja þau J
Slökkviliðið kom í heimsókn til okkar í haust og kenndi okkur ýmislegt um brunavarnir og hvað við ættum að gera ef það kæmi eldur. Við fengum líka að fara inn í sjúkrabílinn og skoða okkur um. Slökkviliðið er í samstarfi við alla leikskóla og verkefnið heitir Logi og Glóð. Slökkvilið