skólar.is - Kór
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

 

Á deildinni í vetur eru 25 börn, 13 stelpur og 12 strákar, þau eru fædd 2006. Starfsmenn deildarinnar eru Kristrún deildarstjóri (grunnskólakennari), Katrín (grunnskólakennari) og Hildur leiðbeinandi.

Unnið er  með málörvun með meisturunum á hverjum degi þrisvar í viku er aðeins lengri tími. Börnin fara öll í hópastarf einu sinni í viku þar sem ýmiss verkefni eru unnin. Unnið er eftir Námskrá fyrir elstu börnin í leikskólum Kópavogs og Aðalnámskrá leikskóla. Námskrárnar eru rammi sem leikskólinn aðlagar sínum starfsaðferðum og aðstæðum.

Börnin fara einu sinni í viku í listasmiðju til Þóru þar sem lögð er áhersla á að börnin tjái sig frjálst og að sköpunargleðin fái að njóta sín.  Í listum er unnið með fjölbreyttan efnivið úr náttúrunni og verðlaust efni af ýmsu tagi. Sjálft sköpunarferlið skiptir meira máli en útkoman.


Hanna Sóley tekur á móti börnunum einu sinni í viku í hreyfisalinn og þar er ávallt mikið líf og fjör. Áhersla er lögð á grófhreyfingar, styrk, þrek og þol. Markmiðið er að börnin öðlist gott úthald, örvi hjartslátt og blóðrás og síðan er lögð er áhersla á slökun í lok hverrar stundar.


Útivera er einu sinni til tvisvar á dag en hún býður upp á góða hreyfingu og er mikilvægur þáttur í leikskólauppeldi. Í útiverunni leika börnin sér mest frjálst og það er boðið upp á hefðbundið leikefni.  Einnig er farið með börnin í styttri og lengri vettvangsferðir í nánasta umhverfi leikskólans einu sinni í viku þar sem verið er að læra á nánasta umhverfi og fara í útileiki. Yfir sumartímann er útiveran aukin umtalsvert, þá er boðið upp á mismunandi stöðvar með fjölbreyttum verkefnum við allra hæfi.

 

Dagskipulag

Hópaskipan                                                                                                                                                                                        

 

 
 
 
Netfang Gleðilundar er: gledilundur@kor.skolar.is. Beinn sími er 570 4943