Ljósalausi dagurinn
Þann 1. desember var ljósalaus dagur hjá okkur og komu öll börnin með vasaljós í leikskólann. Við útbjuggum svo svakaleg tjaldgöng um alla deildina og skemmtum okkur alveg svakaleg vel. Dagurinn heppnaðist mjög vel og voru bæði börn og kennarar alsælir með daginn:)

Starfsdagur
Þann 18. nóvember er starfsdagur hér í leikskólanum og þá er leikskólinn lokaður.
Dagur íslenskrar tungu
Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, verður nú fagnað í sextánda sinn í ár. Við látum ekki okkar eftir liggja og í tilefni dagsins fáum við í heimsókn til okkar nemendur í 7. bekk í Hörðuvallaskóla. Þau koma til okkar kl. 10:00 og ætla að lesa fyrir okkur eitthvað alveg svakalega skemmtilegt:)
Við ætlum líka að vera með sameiginlega söngstund inni í hreyfisal kl. 14:00 þar sem við ætlum að syngja gömul og góð íslensk lög. Lagalistinn inniheldur eftirfarandi lög: Krummi svaf í klettagjá, Kvæðið um fuglana, Á íslensku má alltaf finna svar, Frost er úti, Nú er úti Norðanvindur, Í Hlíðarendakoti og kvæðið Buxur, vesti, brók og skór.
Bíóstund
Föstudaginn 4. nóvember fengu krakkarnir loksins að horfa á Dýrin í Hálsaskógi þar sem þau höfðu öll unnið sér inn næginlega marga stimpla í stimpilkortin sín fyrir góða hegðun í matartímum. Reglurnar sem við erum að æfa okkur í eru: sitja fallega við matarborðið, nota inni röddina við matarborðið og nota hnífapörin:) Kærleikslundur er orðinn mjög sjóaður í þessu og standa þau sig alveg svakalega vel:) Börnin voru ekkert smá ánægð með þetta og höfðum við það mjög kósý en þau höfðu mismikið úthald í að horfa á myndina og voru einungis örfá börn sem horfðu á alla myndina:)

Vettvangsferð
Þann 3. nóvember fórum við í annað sinn á Bókasafnið í Hamraborginni en í þetta sinn fórum við öll saman. Strætóferðin gekk mjög vel og börnin skemmtu sér hið besta. Lesin var sagan Þú ert duglegur Bangsi litli og hlustuðu þau af mikilli athygli. Við eigum pottþétt eftir að fara aftur þar sem okkur finnst svo hrikalega gaman í strætó:)





Dótadagur
Krakkarnir skemmtu sér konunglega á dótadaginn þann 7. október og voru miklu spenntari fyrir dótinu sem allir hinir komu með en þeirra eigin dóti:) Þennan dag lærðum við að deila dótinu okkar með öllum hinum krökkunum á deildinni og gekk það mjög vel í langflestum tilvikum:) Einnig var gaman að sjá hversu margir komu í einhverju bleiku í tilefni dags bleiku slaufunnar:)

Bókasafnsferðin mikla
Þann 6. október fórum við með strætó á Bókasafn Kópavogs í Hamraborg. Ferðin gekk rosalega vel og voru krakkarnir leikskólanum og foreldrum til sóma:) Börnin fengu safnakynningu þar sem starfsmaður gekk með þeim um safnið og las fyrir þau sögu þar sem rauði þráðurinn í sögunni var vinsemd. Spenntust voru börnin þó fyrir strætóferðinni enda alltaf mikið sport.

4. október 2011
Heimsóknir, dótadagur og fleira:)
Fimmtudaginn 6. október ætla 2007 og 2008 börnin að skella sér í strætóferð. Ferðinni er heitið á Bókasafn Kópavogs í Hamraborginni þar sem við munum fara á safnakynningu sem og sögustund. Börnin þurfa að vera mætt í síðasta lagi kl. 9:15 þar sem strætóinn fer uppúr 9:30:) Börn fædd 2009 ætla hins vegar að hafa kósýstund á leikskólanum þar sem þau ætla að kíkja í heimsókn á Gleðilund og skemmta sér með börnunum þar:)
Á föstudaginn 7. október verður dótadagur hér í leikskólanum og mega börnin þá koma með leikfang að heiman. Okkur þætti vænt um ef leikföng með hljóði sem og stríðsleikföng yrðu skilin eftir heima. Minnum foreldra á að merkja leikföng barnanna vel:)
Okkur á Kærleikslundi langar að biðja ykkur um að hjálpa okkur að safna Cheerios kössum og koma með þá í leikskólann. Við stefnum á að nota þá sem verkefnamöppu fyrir börnin þar sem við getum safnað listaverkum þeirra á einn stað.
Að lokum langar okkur að biðja ykkur um að setja saman lítið albúm sem börnin væru með hér í leikskólanum í vetur. Albúmin myndum við nota í samverustundum sem er mjög góð leið til að fá börnin til að tjá sig og segja frá því sem þau sjá á myndunum. Það þurfa alls ekki að vera margar myndir í albúminu en gaman væri ef nánasta fjölskylda og annað sem barninu þykir vænt um væri þar:) Það væri alveg frábært ef allir gætu verið komnir með albúm í leikskólann um miðjan októbermánuð þar sem þema mánaðarins er Ég sjálfur:)
22. september 2011
Dagur íslenskrar náttúru

Dagur íslenskrar náttúru var haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn föstudaginn 16. september 2011síðastlliðinn. Daginn ber upp á fæðingardag Ómars Ragnarssonar. Er það gert í viðurkenningarskyni fyrir framlag Ómars til náttúruverndar og almenningsfræðslu um mikilvægi íslenskrar náttúru. Hann hefur sýnt þjóðinni afskekkta staði sem fáir þekktu fyrir og hann hefur greint frá náttúruundrum, jarðskjálftum og eldgosum í máli og myndum. Dagurinn er einnig tileinkaður öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum til að fræða um íslenska nátttúru. Markmiðið með degi íslenskrar náttúru er að beina sjónum landsmanna að hinni einstöku náttúru landsins, gögnum hennar og gæðum. Við létum að sjálfsögðu málið okkur varða og fórum út í tilefni dagsins og fundum fallega ,,óskasteina" sem við ætlum svo að mála í fallegum litum og halda upp á. Einnig byrjuðum við á því að fara með ávaxta og grænmetisafganga í safntunnuna sem sett var upp þennan sama dag en það munu umsjónarmenn deildarinnar sjá um á degi hverjum í allan vetur.
.JPG)
Umsjónarmenn að störfum:)
15.september 2011
Sælir kæru foreldrar
Nú er allri aðlögun lokið og eru börnin orðin 21 á deildinni. Starfið gengur mjög vel og erum við komin langt í allri skipulagningu á starfi vetrarins. Börnin byrja að öllu óbreyttu í næstu viku í listum og hreyfingu en ég læt fylgja með í viðhengi hópaskipan og tímasetningu barnanna:) Börnin fara einu sinni í viku í listir til Þóru og einu sinni í viku í hreyfingu til Hönnu Sóleyjar. Foreldrar eru beðnir um að láta börnin mæta í gammósíum á þeim dögum sem þau fara í hreyfingu þar sem börnin eiga að vera berfætt í tímunum. Dagsskipulag deildarinnar er einnig að finna í viðhengi. Þessar upplýsingar er einnig að finna á heimasíðu leikskólans www.skolar.is/kor undir linknum Kærleikslundur.
Við höfum verið að fá nýtt starfsfólk inn til okkar en eins og þið vitið þá hætti Dagmar hjá okkur um mánaðarmótin og fengum við til liðs við okkur leikskólakennarann Lilju Margréti sem kom af Friðarlundi en fyrir voru Ása, Katrín Ósk og Kristinn. Í næstu viku mun Vera koma til með að vera hjá okkur en hún er einnig að vinna í eldhúsi leikskólans. Þóra fagstjóri sér um að opna deildina á morgnana og er með okkur milli 8:00 til 8:30 alla morgna. Starfsfólk deildarinnar og vinnutími er eftirfarandi:
|
Ása-deildarstjóri |
8:15-15:45
|
|
Katrín Ósk |
8:30-16:00
|
|
Kristinn |
8:30-16:30/9:00-17:00 |
|
Lilja Margrét |
8:30-15:00 |
|
Vera |
9:00-12:00 alla daga nema fimmtudaga og 16-17 alla daga |
|
Þóra |
8:00-8:30 |
Við viljum hvetja alla foreldra til að vera duglegir að skoða heimasíðuna okkar þar sem við munum setja allar nauðsynlegar upplýsingar þangað inn sem og myndir þegar fram líða stundir og allt er komið á fullt hjá okkur. Við höfum enn sem komið er ekki sett inn nýjar myndir en þær fara að detta inn. Dagatal mánaðarins sem og Fréttablað mánaðarins munu birtast á síðunni von bráðarJ
Þar sem kólnað hefur í veðri viljum við biðja ykkur um að huga að fatnaði barnanna þar sem við förum út allavega einu sinni á dag í vetur. Einnig viljum við biðja ykkur um að senda börnin í skóm (helst ekki reimuðum) sem auðvelt er að klæða sig í og úr þar sem það er hluti af sjálfshjálpinni að klæða sig sjálfur í og úr eftir útiveru. Mjög mikilvægt er að merkja föt barnanna vel og viljum við benda t.d á Rögn www.rogn.is eða Merkt www.merkt.is sem sérhæfa sig m.a. í nafnaborðum á föt. Það kemur fyrir að börnin eru að klæða sig úr og gleyma að setja fötin sín á réttan stað og þá hjálpar það mjög mikið þegar finna þarf rétta eigendur að fötin séu vel merktJ
Við viljum vekja athygli á því að það er í boði að koma með bækur, geisladiska og bangsa í leikskólann og biðjum við fólk einnig að merkja það vel sem börnin koma með. Á næstunni verður dótadagur í leikskólanum og verður hann auglýstur þegar nær dregurJ
Endilega ef einhverjar spurningar vakna þá endilega hafið samband við okkurJ
Kveðja starfsfólk Kærleikslundar