Kærleikslundur
Á Kærleikslundi er 21 barn og eru þau fædd á árunum 2007-2009. Börn fædd 2007 eru níu, fimm stúlkur og fjórir drengir. Börn fædd 2008 eru sjö, þrjár stúlkur og fjórir drengir. Börn fædd 2009 eru fimm og eru það allt drengir.
Börnin fara einu sinni í viku í listasmiðju til Þóru (á miðvikudögum) þar sem lögð er áhersla á að börnin tjái sig frjálst og að sköpunargleðin fái að njóta sín. Í listum er unnið með fjölbreyttan efnivið úr náttúrunni og verðlaust efni af ýmsu tagi. Sjálft sköpunarferlið skiptir meira máli en útkoman.
Hanna Sóley tekur á móti börnunum einu sinni í viku (á þriðjudögum) í hreyfisalinn og þar er ávallt mikið líf og fjör. Áhersla er lögð á grófhreyfingar, styrk, þrek og þol. Markmiðið er að börnin öðlist gott úthald, örvi hjartslátt og blóðrás og síðan er lögð er áhersla á slökun í lok hverrar stundar.
Útivera er einu sinni til tvisvar á dag en hún býður upp á góða hreyfingu og er mikilvægur þáttur í leikskólauppeldi. Í útiverunni leika börnin sér mest frjálst og það er boðið upp á hefðbundið leikefni. Einnig er farið með börnin í styttri og lengri vettvangsferðir í nánasta umhverfi leikskólans einu sinni í viku þar sem verið er að læra á nánasta umhverfi og fara í útileiki. Yfir sumartímann er útiveran aukin umtalsvert, þá er boðið upp á mismunandi stöðvar með fjölbreyttum verkefnum við allra hæfi.
Dagsskipulag Kærleikslundar
Hópaskipting Kærleikslundar
Póstfangið á kærleikslundi er: kaerleikslundur@kor.skolar.is
Beinn sími inn á deildina er 570-4947. Vinsamlega ónáðið ekki frá kl.12-14:00 því þá eru börnin í hvíld.