skólar.is - Kór
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Snjór og jólaundirbúningur

Börnin hafa tekið snjónum fagnandi hendi. Þegar allur þessi snjór var nýfallin biðu þau flest spennt eftir því að fá að fara út að leika í snjónum. Það var mjög gaman að fylgjast með þeim yngstu upplifa snjóinn. Þeim fannst þetta flestum allt mjög spennandi og fannst það bara sniðugt þegar kennari í prakkarastuði fór í smá snjókast við þau. Þau voru þó spenntust fyrir því að fá snjóbolta í hendurnar til að smakka dálítið á honum. Eldri krakkarnir voru hins vegar meira fyrir það að búa til snjókarla. Þau rúlluðu risastórum snjóboltum um allan garðinn og gerðu risastóran snjókarl. Við skulum nú bara vona að þessi snjór haldist eitthvað svo börnin geti fengið að njóta hans sem lengst! Svo væri nú heldur ekki leiðinlegt að hafa hvít jól.

Já, jólin eru farin að nálgast og jólaundirbúningurinn er kominn á fullt hjá okkur á Kór. Undanfarið hafa börnin verið að búa til jólagjafir sem munu svo fara heim með þeim í lok næstu viku. Hver árgangur gerði mismunandi gjöf og verður vafalaust spennandi fyrir þau að sýna afraksturinn.

 Í morgun skreyttu börnin rúðurnar inni á deild og bökuðu piparkökur. Þau stimpluðu með málningu ýmis form á rúðurnar – snjókarl, stjörnu, epli og jólatré. Þar að auki stmipluðu þau jólasveina með höndunum – mjög flott. Piparkökubaksturinn var mjög skemmtilegur og voru allir mjög spenntir að fá að taka þátt í því. Þeim yngstu fannst mjög spennandi að smakka piparkökudeigið og létum við það eftir þeim – smá smakk fyrir hvern og einn J „Piparkökusöngurinn“ úr Dýrunum í Hálsaskógi var svo að sjálfsögu raulaður í tilefni dagsins.

Föstudaginn síðasta, 25. nóv, var jólasöngstund í salnum. Þar hittist allur leikskólinn og söng jólalög saman. Þar að auki var kveikt á fyrsta kertinu á aðventukransinum okkar, Spádómskerti. Hvern föstudag fram að jólum munum við svo hittast í salnum til að syngja jólalög og kveikja á aðventukertunum. Jólasöngvar hafa svo verið allsráðandi hjá okkur inni á deild undanfarna dagana. Við höfum bæði verið að hlusta á jólalög og syngja þau við hvert tækifæri. Við höfum einnig verið að æfa okkur í að ganga í kringum jólatréð á meðan við syngjum jólalögin. Föstudaginn 9. des verður jólaball og munum við láta ljós okkar skína þar.

Við hlökkum mikið til komandi vikna en þá verður nóg um að vera hjá okkur á leikskólanum.  Dagskráin framundan er eftirfarandi:

1. desember: Ljósalaus dagur (börnin koma með vasaljós)

7. desember: Foreldrakaffi kl. 15:00 (nánar auglýst síðar)

9. desember: Jólamatur og jólastund í Hörðuvallaskóla

16. desember: Jólaleikrit kl. 9:15 í Hreyfisalnum

23. desember: Jólasöngstund í Hreyfisalnum og Rauður dagur

Við mælum svo með því að fylgjast vel með hérna á heimasíðu leikskólans til að fara ekki á mis við neitt J

 

ps. Í gær byrjaði nýr starfsmaður hjá okkur á Tryggðarlundi. Hann heitir Halli og kemur í staðinn fyrir Dagbjörtu sem er hætt á deildinni hjá okkur og farin í afleysingar. Börnin virðast taka Halla mjög vel og bjóðum við hann hjartanlega velkominn til okkar.

 

Náttfata- og bangsadagur 27. október

Í dag er búið að vera rosa mikið fjör hjá okkur á Tryggðarlundi! Það er nú alltaf fjör hjá okkur en dagurinn í dag var sérstaklega skemmtilegur þar sem allir mættu í náttfötum og með rosa flotta bangsa af öllum stærðum og gerðum :) Börnin hafa alltaf rosalega gaman af því að koma með dót að heiman og átti það svo sannarlega við í dag. Náttfötin slógu líka í gegn, allir svakalega fínir og krúttlegir í náttfötunum sínum.

Við byrjuðum daginn bara í rólegheitum og leyfðum börnunum að leika með bangsana sína, fá að sýna hinum börnunum og líka að fá að skoða það sem hinir komu með. Fyrir síðdegishressingun sögðu svo öll börnin frá böngsunum sínum - hvar þau fengu þá, hvað þeir hétu og svona ýmislegt. Margir bangsarnir höfðu skemmtileg nöfn og höfðu allir sína sögu. Eftir síðdegishressinguna var svo náttfatapartý í Draumalundi. Þá var sett hress og skemmtileg tónlist í tækið og börnunum gefið tækifæri á að fá smá útrás :) Þau dönsuðu líka hókípóki, súpermandansinn og ýmsilegt fleira. Bangsarnir fengu að sjálfsögðu að taka þátt í partýinu og skemmtu sér án efa vel eins og börnin ;)

HÉR er hægt að skoða myndir frá deginum:

http://kor.skolar.is/Myndasafn/1751/default.aspx

Takk æðislega fyrir frábæran dag!! Sjáumst hress á morgun... á appelsínugulum degi! :)

7. júní 2011

Sumarið lætur enn á sér standa þrátt fyrir að hinn langþráði júní sé gengin í garð. Reyndar hefur veðrið verið fallegt uppá síðkastið svo við getum lítið kvartað þó svo að nokkrar gráður uppá við væru vel þegnar. Við látum hins vegar ekki smá kulda á okkur fá og höfum nóg fyrir stafni alla daga enda sumardagskráin þétt og skemmtileg. Við minnum ykkur bara á að hafa hlý föt meðferðis í leikskólann.

Síðan síðast var skrifað þá höfum við gert alveg ótrúlega margt. Við erum alltaf að verða duglegri og duglegri í gönguferðunum enda förum við orðið yfirleitt alltaf tvisvar í viku í gönguferð út fyrir leikskólalóðina. Útikennslan á þriðjudögum og fimmtudögum er líka að koma rosalega vel út og finna allir eitthvað við sitt hæfi.  Í einni gönguferðinni bauð ég (Guðbjörg) krökkunum heim til mín í smá heimsókn. Ég er með stórt trampólín við húsið sem þau fengu að hoppa og skoppa á. Við áttum í mesta basli með að ná krökkunum niður af trampólíninu en þau hefðu hæglega getað hoppað allan daginn. Við náðum því bara að labba með helminginn af börnunum því þegar við komum til baka þá var morguninn floginn frá okkur og komumst við bara smá hring með seinni hópinn. Við förum því seinna með seinni helminginn svo allir geti fengið að prufa.

Vegna ösku fengum við rautt ljós á útiveru einn daginn og brugðum við því á það ráð að opna allar deildir skólans og setja upp stöðvar um allt hús. Börnin fengu svo að labba um leikskólann og leika sér þar sem þau vildu. Það kom okkur virkilega á óvart hvað börnin „okkar“ á Tryggðarlundi voru örugg og létu það ekki á sig fá að labba á milli deildanna og leiða starfsmenn annarra deilda.  

Við vorum svo heppin að elstu krakkarnir í leikskólanum buðu okkur á generalprufu útskriftarsýningar sinnar í Hörðuvallaskóla í lok maí. Við fórum því í einni halarófu yfir í stóra skólann og sáum elstu börnin sýna Pétur og úlfinn. Krílin á Tryggðarlundi sátu frosin yfir sýningunni enda þekkja þau ævintýrið mjög vel og því gaman að sjá það lifna við á sviði.

Í lok maí vorum við með brunaæfingu í leikskólanum en kl 10:00 var bjallan sett í gang og við æfðum okkur að fara út yfirveguð, í einfaldri röð og finna svarta ferhyrninginn úti en þar söfnumst við á Tryggðarlundi saman ef eitthvað kemur fyrir. Þetta gekk allt saman mjög vel fyrir sig og börnin stóðu sig eins og hetjur.

Á miðvikudaginn fylgdumst við með útskriftarhátíð grunnsskólakrakkanna en allir nemendur og kennarar Hörðuvallaskóla marseruðu framhjá leikskólanum okkar með trommuslátt í broddi fylkingar. Við vorum inni þegar við heyrðum í trommunum en klæddum okkur á methraða í skó, úlpu og húfu og fylgdumst spennt með J

Í gær fengum við góða heimsókn því tveir hestar komu og heimsóttu leikskólann. Þetta voru þau Greip og Blossi sem voru í fylgd eigenda sinna. Við fengum að klappa þeim og setjast á bak og var mikil gleði með heimsóknina.

Í dag fórum við svo öll í strætóferð. Við fórum í tveimur hópum, tókum strætóinn við Hörðuvallaskóla og fórum svo með honum hring niður að mjóddinni og til baka. Krakkarnir eru mjög uppteknir af því þegar strætó keyrir framhjá deildinni og ákváðum við að láta stóran draum rætast hjá þeim og fara hring með strætó. Við hittum strætóbílstjórann, skoðuðum umferðarljósin og  fengum að prufa að sitja í strætóskýlinu sem var nú ekkert lítið sport J

Við ákváðum að fara í gang með lítið verkefni í anda könnunaraðferðarinnar. Börnin hafa mikinn áhuga á flugum um þessar mundir og rjúka öll út í glugga ef fluga bregður sér inn um gluggan. Við ákváðum að fara með þennan áhuga aðeins lengra og ætlum á næstu vikum að veiða flugur, skoða flugur, lesa bækur um flugur og fræðast um þær á ýmsan hátt. Við erum búnar að hengja  upp hugarkort af flugu á deildina okkar þar sem við höfum skráð það sem börnin vita um flugur núna og svo ætlum við að skrifa á hugakortið þá þekkingu sem börnin öðlast með öðrum lit. Börnin eru líka búin að teikna flugu og svo ætlum við að teikna aftur flugu í lok verkefnisins.

Að sjálfsögðu eru komnar inn myndir af þessu öllu saman svo endilega skoðið myndirnar. Það er líka gaman að skoða myndirnar með börnunum þá geta þau jafnvel sagt ykkur sína upplifun af því sem er á myndunum.

Bestu sumarkveðjur frá okkur á Tryggðarlundi

Guðbjörg, Sólveig og Ingunn

 

 

17. maí 2011

Sæl öll sömul,

þá er maí mánuður gengin í garð með tilheyrandi sól og sumri. Reyndar fóru öll börn út í morgun vel dúðuð í kuldagalla með húfur og vettlinga enda hitinn rétt um 5 gráður J En það er samt sem áður komið sumar og sumarstarfið byrjað hjá okkur í leikskólanum Kór enda erum við hraustmenni með meiru J

Í dag hófst útikennslan hjá okkur en á þriðjudögum og fimmtudögum í sumar ætlum við að bjóða uppá stöðvavinnu í garðinum okkar á milli 9:30 og 11:00. Stöðvarnar eru átta en við verðum með sex stöðvar opnar í einu og hver deild sér um eina stöð. Þrjár stöðvar eru þá opnar fyrir framan hús og þrjár fyrir aftan og börnunum er frjálst að labba á milli stöðva. Stöðvarnar sem verða í boði í sumar eru eftirfarandi:

Fyrir framan hús:

Hvar er stöðin ?

Hvað er gert á stöðinni ?

Kastali og rólur

Frjáls leikur í og við leiktæki. Starfsfólk er til staðar til þess að hjálpa börnunum í leik og aðstoða þau yngstu í kastalanum.

Stéttin og sandkassinn fyrir framan inngangin við Gulalund.

Krítar á stétt og endurnýtanlegur efniviður í sandkassa.

Fyrir ofan kastala, hjá dótaskúr  

Hlutverkaleikur, leikur með tjald, teppi, púða, dúkkur og fl.

Svæði milli leikskólans og dótaskúrs

Smíðakrókur, takmarkað við 4-6 börn. Börnin fá að smíða og saga með hjálp starfsfólks.

 

Fyrir aftan hús:

Hvar er stöðin ?

Hvað er gert á stöðinni ?

Fyrir framan gluggana á Friðarlundi.

Vinna með vatn á ýmsan hátt s.s mála með vatni eða vatnslitum, sulla, sápukúlur og fl.

Pallurinn fyrir framan hreyfisal.

Byggingaleikur með s.s mjólkurkassa, holukubba, dýrin, dýnur, tuskudýr og fl.

Rólusvæðið og svæðið um kring.  

Frjáls leikur við leiktækin s.s í rólum, klifurgrind, sandkassa, skjaldbökurólu, hringekju og fl.

Grasflötur á miðri lóð.

Leikir s.s boltaleikir, hreyfileikir, stöðvaþjálfun og fl.

 

Á þriðjudögum hittir útikennslan á vettvangsferðirnar okkar með Hönnu Sóley og Þóru. Þau fá þó alltaf að taka þátt í útináminu líka þar sem helmingur eða hluti barnanna fer í gönguferð í einu.

Sem sagt skemmtilegir tímar framundan og nóg um að vera.

Bestu kveðjur

Guðbjörg, Sólveig og Ingunn

 

19. apríl 2010

Lífið gengur sinn vanagang á Tryggðarlundi, apríl að klárast og dagarnir líða allt of hratt. Börnin verða orðnir unglingar áður en við vitum af ;) Apríl hefur verið tileinkaður páskunum, við erum búin að vera að gera páskaskraut og vinna mikið með gula litinn. Gula vinkona okkar á himninum hefur þó ekki verið eins dugleg að láta sjá sig en við látum það ekki á okkur fá.  Við erum með svo duglega krakka sem láta ekki smá vind, snjó, él og rigningu (allt á sömu mínútunni) á sig fá og fara út í öllu veðri. Enda verðum við öll svo miklu glaðari fyrir vikið, það er líka ekkert skemmtilegra en að hoppa í pollunum, borða snjóinn og láta sig fjúka um garðinn ;)

Hópastarfið í apríl hefur verið frjálst. Við höfum verið að vinna með páskaföndur en höfum líka notað tímann í að lesa bækur, hlusta á ævintýri, spila og leika okkur. Það er stundum svo gott að fara í litla hópa og fá að leika sér í friði, í ró og næði. Það er allt gott í bland eins og einhver sagði, það er nauðsynlegt að hafa smá hamagang á hóli af og til en það er líka voða gott að setjast niður og ná smá ró.

Í maí ætlum við svo að fara í fastar skorður aftur með hópastarfið og fjalla um umferðina, náttúruna  og dýrin í sveitinni.  Við komum til með að æfa okkur að fara yfir götur og skoða náttúruna allt í kring og hlakkar okkur mikið til J Vonum bara að þessi gula á himninum vilji koma með okkur !!

Núna erum við að verða algjörir snillingar í tákn með tali. Við lærum alltaf tvö tákn á viku auk þess sem við kunnum táknin fyrir vikudagana og litina. Í síðustu viku lærðum við táknin fyrir „mamma“ og pabbi“ og í þessari viku táknin fyrir „amma“ og „afi“. Táknin hanga uppi á deildinni ef þið viljið læra táknin líka og svo er hægt að skoða síðuna www.tmt.is en þar fáum við öll þau tákn sem við notum.

Annars erum við bara rosalega hress og kát enda ekki annað hægt með svona flottan krakkahóp. Í dag erum við öll að fara í páskafrí og vonum við að þið hafið það öll sem allra best yfir páskana og njótið þess að vera í fríi saman. Við hlökkum svo til að hitta ykkur eftir páska vonandi endurnærð eftir ljúfa daga.

Bestu páskakveðjur

Guðbjörg, Sólveig, Ingunn, Sveinn og allir á Heilsuleikskólanum Kór

5. apríl 2011

Jæja þá er vorið farið að banka uppá og við farin að geta verið meira úti í góða veðrinu. Núna er alltaf í boði að fara út tvisvar á dag, á morgnanna og svo eftir hvíldina fyrir þau sem vilja. Eftir hádegi þá erum við yfirleitt fyrir framan hús með stóru krökkunum enda eru krakkarnir á Tryggðarlundi orðnir svo duglegir að það er ekkert mál að vera þar. Þeim finnst það mikið sport og vilja helst fara í gallan um leið og þau vakna, en við reynum nú að fá þau til þess að gefa sér tíma til þess að opna augun áður en þau fara út. Það er svo gaman úti J

Annars gengur allt vel hjá okkur, núna erum við aðeins farin að undirbúa páskana með því að taka fram gula málningu, fjaðrir og eggjaskurn og dundum okkur við að framleiða páskaskraut í stórum stíl. Það styttist óðum í páskafríið og eftir það verður nánast komið sumar J  Tíminn líður hratt enda nóg að gera hjá duglegum krökkum.

Það eru smá breytingar á starfsmannahaldi á deildinni okkar en hún Guðrún sem hefur leyst mig (Guðbjörgu) af í undirbúning er farin í almennar afleysingar í húsinu og í hennar stað er hann Sveinn kominn til okkar og verður hjá okkur á Tryggðarlundi á þriðjudögum frá kl 9:00-15:00. Hann aðstoðar svo Kærleiks- og Tryggðarlund eftir þörfum frá kl 9:00-14:15 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Við tökum honum að sjálfsögðu fagnandi og þökkum Guðrúnu fyrir ánægjulegt samstarf.

Það er svo komið upp sjónrænt dagskipulag á deildina okkar, það hangir uppi við hlið hurðarinnar inn á Draumalund. Tilgangurinn með því er að gera athafnir dagsins sýnilegar fyrir börnunum, efla sjálfstæði barnanna og kenna þeim að tengja myndir og tákn við athafnir. Þeim finnst þetta vægast sagt spennandi og fylgjast vel með að eftir skipulaginu sé farið.

Það eru komnar inn fullt af nýjum myndum í aprílalbúmið á myndasíðunni okkar J

Vorkveðjur frá okkur öllum Tryggðarlundi~

 

 

16. mars 2011

Lífið er ljúft á Tryggðarlundi enda nóg við að vera. Veðrið hefur ekki alveg verið uppá sitt besta það sem af er mánuði og hefur því verið mikið um inniveru eða stutta útiveru svona aðeins til þess að fá frískt loft. Við krossum fingur um að þessari tíð fari nú að ljúka og að við taki gott vor með mikilli útiveru og spennandi vettvangsferðum.

 

Við höfum samt gert ýmislegt inni og látum ekki smá vetur á okkur fá. Við héldum bolludaginn hátíðlegan og borðuðum fiskibollur í hádeginu og rjómabollu í kaffinu. Við bjuggum til þessa fínu bolluvendi sem þið hafið kannski fengið að kenna á heima fyrir. Á sprengidaginn borðuðum við á okkur gat af saltkjöti og baunum og á öskudaginn náði fjörið hæðstu hæðum þegar við slóum “köttinn” úr tunnunni og dönsuðum á öskudagsballinu á sal leikskólans. Þvílíkt fjör !!!

 

Nú eru foreldraviðtölin í fullum gangi og hefur verið virkilega gaman að spjalla við ykkur öll sömul. Börnin eru að sýna flottar framfarir og gaman að sjá hvað þau dafna vel.

 

Á fimmtudögum ætlum við að reyna að fara í Kórinn (Íþróttahöllina), við förum þá ýmist öll deildin saman eða í minni hópum. Við löbbum þá yfir með eldri krökkunum í leikskólanum sem hjálpa litlum fótum að komast allaleið J Þar fáum við svo að hlaupa um og fara í leiki á gervigrasinu.

 

Það eru smá breytingar á dagskipulaginu hjá okku. Á miðvikudögum eftir síðdegishressinguna ætlum við að fara í stöðvavinnu þar sem við setjum upp þrjár til fjórar leikstöðvar og vinnum í litlum hópum. Markmiðið í þessum hópum er að börnin fái næði til þess að leika sér og fái hjálp frá kennurum til þess að þróa leikinn og læra að nota efniviðinn. Við stoppum stutt á hverri stöð (c.a 15 mínútur) og færumst alltaf á milli stöðva með okkar kennara. Það eru engir fastir hópar í stöðvavinnu heldur ætlum við að æfa okkur í að leika við sem flesta og hafa gaman af :)

 

Á föstudaginn eftir viku er svo komið að okkur á Tryggðarlundi að velja hádegismat og völdu krakkarnir kjúklingaleggi og franskar karöflur. Þann dag verður grænn dagur í leikskólanum J

 

Sem sagt í nógu að snúast á Tryggðarlundi og allir hressir og kátir :) 

 

22. febrúar 2011

 

Allt gengur vel á Tryggðarlundi og virðist sem flensan sé á undanhaldi. Börnin eru þó sum enn að fá hita og kvef en eru þó ekki eins lengi frá í einu þannig að við vonum að þetta sé allt að koma hjá okkur.

 

Í febrúar lögðum við áherslu á litina (gulan, rauðan, grænan, bláan, bleikan og fjólubláan) og unnum mörg skemmtileg verkefni tengd litunum eins og sjá má á veggjum deildarinnar og í febrúar myndaalbúminu okkar. Við lærðum líka táknin fyrir litina og voru börnin mjög áhugasöm. Núna eru þau til að mynda mikið að velta litunum fyrir sér og má heyra þau rökræða af og til hvort þessi eða hinn liturinn sé rauður eða blár í leik ;)

 

Við unnum líka mikið með tannverndina og kynntumst Karíusi og Baktusi. Við hlustuðum á söguna, lásum bókina, skoðuðum myndir og horfðum á DVD myndina. Börnin lifðu sig mjög vel inn í hlutverkin en við áttum þó í mesta basli með að fá þau til þess að skilja að tannburstinn og tannlæknirinn væru góðir en flest vorkenndu bræðrunum mikið að vera skolað út í sjó. Við vonum að börnin hafi ekki farið í baklás heima og neitað að bursta tennurnar ;)  

 

Í mars tekur svo við nýtt viðfangsefni í hópastarfinu en þá ætlum við að skoða aðeins formin í umhverfinu okkar s.s hring, þríhyrning og ferhyrning (kassi) og skoða úr hvaða formum húsin, sólin, gluggar og fl eru búin til. Við ætlum einnig að fræðast aðeins um húsdýrin og afhvæmi þeirra og lífið í sveitinni. Auk þess sem við ætlum að fegra aðeins umhverfið okkar með því að tína rusl í garðinum okkar og nánasta umhverfi og fjalla um umhverfismennt.  

 

Á fimmtudaginn í síðustu viku fórum við með stelpunar í Kórinn þar sem þær fengu að hlaupa aðeins um á gerfigrasinu og fóru í leiki. Ferðalagið gekk mjög vel þrátt fyrir langt ferðalag fyrir litlar fætur. Stelpurnar á Gæða- og Gleðilundi voru svo elskulegar að aðstoða okkur. Stelpurnar komu að sjálfsögðu með stjörnur í augunum til baka í leikskólann og fannst rosalega gaman að fá að fara með stóru stelpunum. Það voru því þreyttar stelpur sem sofnuðu í hvíldinni þann daginn. Á fimmtudaginn stefnum við svo á að fara í Kórinn með strákana og vonum við að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir.

 

Við minnum svo á skipulagsdaginn á föstudag en þá verður leikskólinn lokaður.

 

Bestu kveðjur af Tryggðarlundi.

 

Febrúar 2011

Janúar hefur verið annasamur mánuður hjá okkur á Tryggðarlundi. Börnin komu hress og kát úr jólafríinu og tilbúin að takast á við nýtt og skemmtilegt ár.

Nú erum við komnar vel af stað með hópastarfið og eru börnin mjög áhugasöm að taka þátt og vera með. Þau eru nú flest komin með á hreint hvað þau heita, hvar þau eiga heima, nöfn fjölskyldumeðlima og afmælisdagana. Febrúarmánuður verður svo tileinkaður tannvernd og litunum og munum við vinna mörg skemmtileg verkefni í febrúar tengd viðfangsefnunum.

Þessa vikuna er tannverndarvikan og ætlum við að fræðast aðeins um tennurnar og tannburstann auk þess sem er holt og óholt. Við ætlum að hlusta á og lesa Karíus og Baktus og vinna verkefni tengd tannvernd. Á fimmtudaginn ætlum við að baka hollustubrauð fyrir hádegi og horfa á myndina um bræðuna Karíus og Baktus eftir síðdegiskaffið.

Við höfum hlustað mikið á Pétur og úlfinn síðustu vikur og hafa börnin mjög gaman af ævintýrinu. Þau vita nú orðið alveg hvaða hljóðfæri táknar hvaða sögupersónu og eru með atburðarrásina á hreinu. Það verður gaman að sjá hvort Karíus og Baktus fái sömu undirtektir.

Við héldum þorran hátíðlegan á deildinni okkar og bjuggum til þorrahatta og borðuðum saman þorramat. Lang flestir smökkuðu það sem í boði var en við fengum bakka með sviðasultu, hangikjöti, hrútspungum, hákarli og harðfisk. En auk þess fengum við slátur með öllu tilheyrandi þannig að engin fór svangur frá borðinu.

Við héldum líka bóndadaginn hátíðlegan og buðum pöbbum, öfum, frændum og vinum til okkar í nýbakaða snúða og smá þorramat. Það var mjög gaman að sjá hversu margir mættu og áttu með okkur glaðan dag.

Við fylgdumst með strákunum okkar á HM í handboltanum og horfðum á leikina hér á sameiginlega rými skólans. Það var auðvitað mikið sport :) Við fengum sent plaggat sem hangir uppi á deildinni okkar og voru börnin lang flest búin að finna sér "pabba" í liðinu og voru sannfærð um að þetta væri pabbi þeirra :)

En annars hafa verið mikil veikindi á krílunum okkar á Tryggðarlundi. Veikindin hafa þá einkennst af háum hita og kvefi sem getur staðið í viku til tíu daga. Við vonum að allir séu búnir að fá sinn skerf af veikindum fyrir árið og reynum nú að passa vel uppá hvort annað svo allir hressist sem fyrst.

Bestu kveðjur

Tryggðarlundarbúar

Janúar 2011

Gleðilegt ár öll sömul og takk fyrir gott samstarf á því gamla. Það var virkilega gaman að hitta börnin aftur eftir gott jólafrí og er rútínan að komast í samt lag hjá okkur. Nú tekur við nýtt spennandi ár á Tryggðarlundi, börnin´öll að verða þriggja ára og því tilbúnari að takast á við aðeins flóknari hluti. Þau eru reyndar alveg sérstaklega dugleg og það er gaman að kenna þeim nýja hluti. Seinni önnin okkar verður með svipuðu sniði og sú fyrri enda fannst okkur rútínan ganga vel og henta hópnum. Við komum þó til með að gera smá breytingar og setja aðeins meiri kraft í starfið.

Núna ætlum við að setja hópastarfið í aðeins fastari skorður. Við erum búin að raða börnunum í þrjá hópa og hver hópur fær sinn hópstjóra. Við vinnum með ákveðin þemu í hverjum mánuði, gerum öll það sama en í minni hópum. Í janúar vinnum við t.d með vináttuna og þemað "ég sjálfur". Þar er markmiðið að allir geti sagt nafnið sitt, nafn fjölskyldumeðlima, aldur, heimilisfang og fl. Við veltum fyrir okkur mismunandi útliti og skoðum hvernig líkaminn vinnur þegar við öndum, hjartað slær, myndum hljóð og fl. Við tökum líka fyrir vináttuna, hvernig við erum góð við hvort annað, hvernig góðir vinir koma fram, hvernig okkur líður ef einhver er ekki góður og þh.

Við vinnum með þessa þætti í hópastarfinu og vinnum svo áfram með sama þema í gegnum allt starf á deildinni. Í febrúar tökum við svo fyrir litina og tannvernd en það kynni ég fyrir ykkur síðar. Hópaskiptingin er eftirfarandi en það er hugsanlegt að við þurfum að gera einhverjar breytingar þegar það er komin reynsla á starfið. Hópastarfið verður á þriðjudögum og fimmtudögum eftir síðdegiskaffið.

Hópur 1

Hópstjóri: Guðbjörg

Hópur 2

Hópstjóri: Sólveig

Hópur 3

Hópstjóri: Ingunn

Anton Snær

Helgi Már

Júlíus Helgi

Bjarki Steinn

Jökull

Arnar Bjarki

Emil Gauti

Anton Páll

Guðbjörg Líf

Sólrún Lísa

Guðrún Antonía

Birgitta Sóley

Guðrún Þorbjörg

Embla Karen

 

Júlía Klara

Júlía Katrín

 

Við ætlum líka að setja meiri kraft í vettvangsferðirnar okkar sem verða á miðvikudögum en það sem af er vetri hafa ekki verið margir dagar þar sem við höfum komist í vettvangsferðir út fyrir leikskólann. Ástæðan er hálka á gangstéttum og of mikill kuldi fyrir litla kroppa. En við erum búin að vera dugleg að hreyfa okkur í útiverunni, fara í gönguferðir á grasinu og hlaupa upp og niður brekkurnar í garðinum. Með hækkandi sól horfir til betri tíðar og við verðum farin að sjást í gulum vestum oftar :)

Könnunarleikurinn verður áfram á mánudögum en börnunum finnst hann rosalega spennandi. Það eru myndir í janúaralbúminu af börnunum í könnunarleik. Þarna fá þau tækifæri til þess að uppgötva og prufa sig áfram í algjöru næði. Þau eru t.d að skrúfa lok á flöskur, raða töppum, leika sér með lykla og keðjur og fl. Þau hafa öll mjög gaman af þessu og stoppa við í 20-30 mínútur.  

Auk þess förum við í hreyfistund, söngstund og listasmiðju. Við æfum fínhreyfingar, lesum bækur, förum í bingo og önnur spil, klippum, límum, litum, perlum og leikum okkur frjálst inni og úti. Við borðum heil ósköp og kúrum okkur þegar við erum þreytt en fyrst og fremst njótum við þess að vera börn og vera til :)

Endilega talið við okkur ef spurningar vakna

Guðbjörg, Sólveig og Ingunn

 

Desember 2010

Desember fer af stað með stæl hjá okkur á Tryggðarlundi enda einn skemmtilegasti mánuður ársins :) Það er svo mikið að gera hjá okkur að engin má vera að því að uppfæra síðuna okkar ;)

Við erum búin að gera heilan helling í anda jólanna og skemmtum okkur alltaf vel saman. Piparkökubaksturinn gekk eins og í sögu, við bjuggum til þessar fínu piparkökur þó svo að sumum hafi fundist deigið heldur spennandi ;) Við erum búin að setja deildina okkar í jólabúninginn, byrjuðum voða vel með seríur í öllum gluggum en svo tóku þær uppá því að bila ein af annari þannig að eftir stendur ein sem er búin að lofa okkur að lýsa fram að jólum ;)

Við fengum alvöru súkkulaðiköku í morgunkaffinu í tilefni 2 ára afmælis leikskólans sem heilsuleikskóli (við drukkum heilsusamlega mjólk með svona til þess að hafa þetta allt saman í stíl ;) ) Við vorum með ljósalausan dag sem var heldur betur fjörugur, allir með vasaljós og svo var hoppað, skoppað og dansað með ljósin. Við hittumst öll í foreldrakaffi á deildinni okkar og það var virkilega gaman að sjá hversu margir mættu, takk fyrir að koma:) Alltaf gaman að fá góða gesti. Börnin voru yfir sig ánægð með þetta, búin að skreyta deildina með dúkum sem þau bjuggu til sjálf og buðu uppá heimagerðar piparkökur, vel skreyttar og sætar :) Við tókum líka þátt í að skreyta jólatré leikskólans sem glitrar nú heldur betur fallega á ganginum. Við fórum yfir í Hörðuvallaskóla þar sem við skemmtum okkur konunglega á jólaballi, þar sem tveir jólasveinar komu, sáu og hreinlega sigruðu :) Við borðuðum svo hangikjöt með öllu tilheyrandi... upp til agna, eða svo....

Sem sagt nóg um að vera og það er rétt að koma miður desember ;) Auk þess erum við búin að leika okkur mikið saman og erum alltaf að verða klárari og klárari að deila hlutum, skiptast á og leika saman. Við höfum reynt að fylgja dagskipulaginu sem mest eftir því við finnum að börnunum líður best þegar allt er í föstum skorðum. Þó svo að það sé mikið um að vera er ekkert stress á Tryggðarlundi, við stressum okkur bara seinna þegar við erum orðin nógu stór ;) Sem sagt kósýheit og jólaljós, þannig á það líka að vera !!

Bestu jólakveðjur frá okkur

Tryggðarlundarbúar

Nóvember 2010

Það er óhætt að segja að það sé í nógu að snúast hjá okkur á Tryggðarlundi. Nú eru öll foreldraviðtölin búin og var virkilega notalegt að spjalla við ykkur öll sömul. Jólin nálgast og spennandi tímar framundan. Við tókum smá forskot á sæluna í síðustu viku, hlustuðum á jólaplötu, máluðum köngla og stráðum "smá" glimmeri yfir. Börnin eru aðeins farin að tala um sveinka sem á heima langt langt upp í fjöllum og segir hó hó hó :) Það eru komin jólaljós í nokkra glugga í kringum okkur sem gleðja lítil hjörtu mikið og í þessari viku byrjuðum við að syngja jólalög :) Sem sagt mjög spennandi tímar framundan :)

Nú er komin meiri reynsla á dagskipulagið okkar og virðist sem það henti börnunum mjög vel. Við erum farin að vinna meira í smærri hópum þar sem aðal viðfangsefnin eru við sjálf, fjölskyldan okkar, umhverfið okkar (s.s hvar við eigum heima) litirnir, dýrin, tölustafirnir og sögur. Við erum ekki komin í fasta hópa ennþá en við stefnum á að setja hópastarfið í ennþá fastari skorður eftir áramót enda eru krakkarnir á Tryggðarlundi einstaklega dugleg, nánast tilbúin að byrja í skóla svei mér þá. Við förum í vettvangsferðir á miðvikudögum en því miður hefur verið of hált fyrir litla fætur að undanförnu. Við verðum því að láta duga að labba hring á grasinu við leikskólann.

Það eru skemmtilegir tímar framundan enda desembermánuður fullur af gleði og ljósum. Við leggjum þó mikla áherslu á rólegheit í leikskólanum, við föndrum, hlustum á jólalög, syngjum, segjum sögur og leikum okkur saman. Jólaföndur er alltaf val og því getur verið að sum börn fari heim með meira jólaföndur en önnur. Við viljum hafa jólamánuðinn notalegan og leyfa börnunum að ráða svolítið ferðinni sjálf. 

En dagskráin framundan er eftirfarandi:

24. nóvember: Piparkökubakstur, allir að koma í bakstursskapi :)

26. nóvember: Fjólublár dagur, jólasöngstund og deildin okkar skreytt.  

1. desember: Ljósalaus dagur (börnin koma með vasaljós), Foreldrakaffi kl 15:00 (nánar auglýst síðar).

10. desember: Jólamatur og jólastund í Hörðuvallaskóla

17. desember: Jólaleikrit kl 9:15 í hreyfisal leikskólans.

23. desember: Rauður dagur - jólasöngstund.

Þetta er að sjálfsögðu ekki tæmandi dagskrá því það verður nóg að gera hjá okkur á Tryggðarlundi. Við stefnum á að setja upp jólasveinaverkstæði, förum og skoðum jólaljósin og gerum margt fleira skemmtilegt saman.

Endilega hafið samband við okkur ef eitthvað er.

Jólakveðja frá Tryggðarlundi.

Guðbjörg, Sólveig og Ingunn

 

6. - 12. október

Dagarnir líða hratt á Tryggðarlundi enda mikið um að vera. Á miðvikudaginn í síðustu viku fórum við í vettvangsferð með krökkunum á Kærleikslundi. Krakkarnir á Kærleikslundi eru líka fædd 2008 og því um að gera að kynnast vel og njóta þess að leika saman. Við fórum 10 saman í einu, fimm af hvorum lundi og æfðum okkur að labba tvö og tvö saman í röð og halda í band. Bandið er bundið saman í hring sem tvö börn halda í, þetta gerir þeim auðveldara fyrir að leiðast þegar þau eru komin í vetrar vettlingana :) Allir fengu að fara í göngutúr og gekk þetta allt saman mjög vel. Það þarf að vanda sig mikið og það er um heilmikið að hugsa þegar það þarf að labba í röð og halda hópinn og stóðu börnin sig mjög vel. Einn hópurinn var svo heppinn að hitta kisu á leiðinni sem vakti að sjálfsögðu mikla lukku og ekki skemmdi fyrir að hún var annsi kát að hitta okkur líka og leyfði okkur að klappa sér og malaði hressilega á meðan :)

Á fimmtudaginn fórum við í listasmiðju með Þóru og gerðum þar haustmyndir sem við máluðum með trjágreinum og límdum á laufblöð. Myndirnar hanga uppi á Gulaganginum fyrir framan deildina okkar. Þóra er mjög ánægð með okkur í listasmiðjunni, við vöndum okkur mikið og erum mjög áhugasöm.

Á föstudaginn var dótadagurinn og þá komum við með dót að heiman í leikskólann. Það tók svolítið á að fá allt þetta dót á deildina okkar og þurfa að skilja að nú áttum við ekki allt dótið saman. Við æfðum okkur að skiptast á, leyfa öðrum að skoða það sem við komum með og gekk það svona upp og ofan. Það féllu nokkur tár þennan dag yfir þessu öllu saman en ég held að við höfum öll náð að jafna okkur vel í helgarfríinu :)

Í gær lékum við okkur mikið úti enda veðrið vel til þess fallið. Í dag fórum við svo í hreyfisalinn með Hönnu Sóley en það fara allir brosandi út að eyrum þangað enda gaman að hoppa og skoppa og fá að leika sér með það sem hreyfisalurinn hefur uppá að bjóða. Efrir hreyfisalinn fengum við svo ávexti og vatn að drekka, áður en við fórum út að leika. Nú erum við að fylla inn í heilsubækurnar okkar fyrir árið 2010. Við erum að stimpla hendur og fætur í heilsubókina svo börnin gætu komið svolítið litrík heim á höndum og fótum fyrir vikið :) 

Endilega talið við okkur ef spurningar vakna

Bestu kveðjur

Guðbjörg, Sólveig, Sveinn og litlu Tryggðarlundarbúarnir :)

Vikan 27-30. september

Vikan hefur verið annasöm hjá okkur á Tryggðarlundi.

Á mánudaginn lékum við okkur inni og úti, æfðum fínhreyfingar með því að leira, lita, perla og púsla. Við æfðum okkur líka að nota skæri með því að klippa í leir. Eftir hádegi fórum við í könnunarleikinn þar sem við skoðuðum endurnýtanlega efniviðinn með rannsóknaraugunum :)

Á þriðjudaginn fórum við með Hönnu Sóley í hreyfisalinn sem var mjög spennandi. Við æfðum okkur m.a að hoppa á öðrum fæti og hoppa niður af 30 cm bekk. Það tók töluvert á þorið fyrir litla kroppa svo ekki sé talað um jafnvægið :) Hanna Sóley hrósaði ykkur mikið fyrir frábæra frammistöðu í að muna eftir að koma ekki í sokkabuxum :) Eftir hvíldina fórum við svo í hópastarf þar sem við unnum í þremur fimm manna hópum. Við fórum yfir nöfnin okkar, nöfn foreldra og systkina og lásum svo bók saman.

Á miðvikudaginn bauð veðrið okkur uppá kósý innipúkadag. Við vorum með opið á milli Kærleikslundar og Tryggðarlundar þar sem við vorum með 6 stöðvar.

  1. Plúss kubbar
  2. Lestin
  3. Bílar og bílateppið
  4. Púsl
  5. Dúkkukrókur
  6. Latibær á DVD

Latibær fékk vinsæladarverðlaunin þann daginn :) Það var þó mjög gaman að sjá hvað börnin voru opin fyrir því að fara á milli deilda. Eftir hádegi héldu notalegu heitin áfram með sögustund undir teppi enda veðrið til þess fallið.

Í dag fimmtudag fórum við út að leika fyrir hádegi. Börnin voru alsæl að komast loksins út að hoppa í pollunum. Eftir hádegi var svo frjáls leikur, bílar, kuppar og púsl. 

Allt gengur sem sagt eins og í sögu á Tryggðarlundi :)

Bestu kveðjur

Guðbjörg, Sólveig og Sveinn 

Vetrarstarfið að hefjast

Nú er dagskipulagið fyrir skólaárið 2010-2011 komið á vefinn undir "um deildina". Við erum líka búin að setja inn söngtexta sem við ætlum að styðjast við í vetur. 

Síðustu vikur hafa farið í það að kynnast nýjum börnum og nýju starfsfólki og erum við öll að aðlagast mjög vel. Það er gaman að sjá hvað börnin taka mér vel en börnin á Tryggðarlundi eru einstaklega samheldin og þarna er saman kominn virkilega góður hópur.

Við ætlum að bralla margt skemmtilegt saman í vetur en fyrst og fremst ætlum við að passa upp á hvort annað, vera góðir vinir og njóta þess að vera til.

Þið eigið yndisleg börn sem ég hlakka mikið til að fá að kynnast ennþá betur :)

Bestu kveðjur

Guðbjörg