skólar.is - Kór
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

2. febrúar 2012

Við viljum byrja á því að þakka öllum bóndum fyrir komuna til okkar á bóndadaginn, það var virkilega gaman að sjá hversu margir komu til okkar og áttu með okkur skemmtilega stund yfir þorramat og kanilsnúðum. Börnin voru yfir sig ánægð með heimsóknina og var gaman að sjá hvað þau nutu sín í að sýna pabba, afa, bræðrum og frændum leikskólan okkar. 17. febrúar er svo öllum mömmum, ömmum, systrum og frænkum boðið í heimsókn til okkar í leikskólan og hlakkar okkur mikið til.

Síðustu vikur hafa verið fullar af fjöri hjá okkur á Vinalundi.  Við erum búin að setja svolítið extra búst í vettvangsferðirnar okkar enda orðið mun auðveldara að labba um og göngustígarnir svo til auðir. Allir fara í gönguferð a.m.k einu sinni í viku en oftast förum við tvisvar. Börnunum finnst ekkert skemmtilegra en að fara í vettvangsferðir og ljóma ef þau sjá gulu vestin sem þau klæðast í vettvangsferðunum.

Í síðustu viku fór yngri hópurinn í Kórinn í fyrsta skipti. Ferðalagið á áfangastað gekk nokkuð vel þrátt fyrir mikinn snjó og erfitt færi. Við þurftum að fara lengri leið þar sem það var ekki búið að moka göngustígana en allt gekk þetta á endanum og vorum við mjög ánægð að sjá hvað þau voru dugleg að pjaksa áfram í gegnum snjóinn. Þeim fannst algjört æði að hlaupa um í kórnum og ljómuðu af gleði. Við sungum nokkur lög, hlupum á milli marka og nutu þau sín í botn. Heimleiðin gekk líka nokkuð vel þrátt fyrir að þreytan væri farin að segja til sín. Eftir hádegismatinn sofnuðu allir vært eftir skemmtileg ferð J Eldri hópurinn var inni á meðan í vali með krökkunum á Friðalundi.

Á mánudaginn fóru svo allir í vettvangsferð. Yngri hópurinn labbaði um nánasta umhverfi leikskólans en eldri hópurinn fór með rassaþotur að kórnum þar sem við renndum okkur af stakri snilld ;) Við löbbuðum svo að hesthúsunum og sáum fullt af hestum og hundum og var mikið fjör hjá okkur. Eldri hópurinn fór svo í kórinn í gær og skemmti sér konunglega. Yngri hópurinn fór í hópastarf á meðan og fór svo út að leika í góða veðrinu.  Allir fóru svo út aftur eftir hvíldina enda veðrið yndislegt og um að gera að nota vel svona daga :) Nú er yngri hópurinn farin að fara í hópastarf líka eins og eldri börnin. Dagskrá febrúarmánaðar og hópaskiptingu má nálgast HÉR. Eldri hópurinn heldur áfram sínu hópastarfi og má nálgast dagskránna fyrir febrúar HÉR.

Framundan eru svo fullt af skemmtilegum uppákomum eins og vanalega. Vikan hefur verið tileinkuð tannvernd og höfum við verið að tala um tennurnar, tannburstan, hollan og óhollan mat og Karíus og Baktus. Á föstudaginn ætlum við að loka tannverndarvikunni með ávaxta og grænmetisdegi í leikskólanum en þá ætlum við að búa til brauðkall og skreyta hann með ávöxtum og grænmeti. Við borðum hann svo í kaffinu. Við á vinalundi ætlum reyndar að halda áfram með verkefnavinnu tengda tannvernd næstu daga. Við hvetjum ykkur til að taka þátt í umræðunni heima og muna að bursta tennurnar kvölds og morgna.

Mánudaginn 6. febrúar er dagur leikskólans en þá ætlum við að tala um leikskólan okkar og hvernig okkur líður saman í leikskólanum. Við komum til með að hengja upp gullkorn á veggi leikskólans en það er margt sem börnin segja í leikskólanum sem vekur kátínu J Konudagsheimsóknin er föstudaginn 17. febrúar en þá eru allar konur (mömmur, ömmur, frænkur og systur) velkomnar til okkar í leikskólan í smá kaffi á milli 15:00-16:00 í tilefni konudagsins. Við höldum uppá bollu-, sprengi- og öskudaginn með pomp og pragt í leikskólanum en við komum til með að auglýsa þá daga betur síðar J Að lokum er svo starfsdagur 27.febrúar en leikskólinn er lokaður þann dag.   

Tákn fyrir næstu tvær vikur má sjá HÉR

Bestu kveðjur frá okkur

Guðbjörg, Sólveig, Bjössi, Anna Hlín og Marlena

 

19. janúar 2012

Tíminn líður hratt á gervihnattaöld ekki síst á Vinalundi þar sem tíminn virðist bókstaflega fljúga áfram með látum. Ég er nokkuð viss um að þessir flottu krakkar verða komnir með bílpróf áður en þið vitið af ;) Það hefur ýmislegt skemmtilegt á daga okkar drifið síðan síðast var skrifað enda á leikskólastarf að vera fullt af uppákomum og fjöri J

Það var dótadagur hjá okkur á föstudaginn síðasta og var mikið fjör J Allir komu með dót að heiman og léku sér með það allan daginn. Það var gaman að sjá hversu börnunum hefur farið fram í að deila dótinu sínu en allir voru tilbúnir að lána dótið sitt. Börnin voru líka fljót að skila dótinu aftur ef eigandinn bað um það og því var lítið um grát þennan daginn... sem er frábært !!

Mánudagurinn tók á móti okkur með miklu svelli í garðinum okkar og áttum við í mesta basli með að komast í leikskólan um morguninn. Sem betur fer datt enginn og meiddi sig alvarlega. Við vorum því inni fyrir hádegi, skiptum okkur á svæði og föndruðum þessa fínu þorrakórónur sem börnin taka með sér heim á morgun föstudag. Eftir hádegi fóru eldri krakkarnir út enda búið að sanda allt vel og vandlega.

Á þriðjudaginn fór yngri hópurinn út að leika fyrir hádegi og eldri hópurinn fór í hópastarf. Við töluðum um þorrann og gamla tímann og hlustuðu börnin af mikilli athygli. Við lásum bók um þorrablót og skoðuðum myndir af allskyns þorramat. Við töluðum um fötin sem fólk klæddist í gamla daga, húsin sem það bjó í og leikföngin sem börnin áttu. Börnin fengu svo að skoða leggi, skel og sviðakjamma og leika sér eins og börn gerðu í gamla daga. Þetta var allt saman mjög spennandi og vakti mikla lukku. Eftir kaffi fórum við svo í könnunarleik, spiluðum ýmis spil og lékum okkur saman.

Á miðvikudaginn var fyrsta Kórferð þessa árs og lentum við heldur betur í ævintýri. Við fórum með eldri hópinn en yngri hópurinn lék inni með krökkunum á Friðarlundi. Við lögðum af stað í fínustu blíðu en á heimleiðinni var komið snarvitlaust veður svo við þurftum að hafa okkur öll við til þess að komast aftur heim.  Þrír kennarar úr Hörðuvallaskóla komu og hjálpuðu okkur að komast aftur í leikskólann og voru allir yfir sig fegnir að vera komnir aftur heim. Næsta miðvikudag fer yngri hópurinn í Kórinn og þá vonum við að veðrið verði betra. Eldri hópurinn fer þá í val með krökkunum á Friðarlundi.

Í dag fóru allir út fyrir hádegi að leika í snjónum. Við erum búin að búa til stóran snjókarl í garðinum okkar og finnst krökkunum rosa gaman að leika úti í snjónum. Við fórum líka í hreyfisalinn með Hauk sem er alltaf jafn skemmtilegt. Auk þess lásum við sögur, lékum okkur með dótið á deildinni og sungum fullt af þorralögum.

Á morgun föstudag er svo bóndadagsgleði hjá okkur í leikskólanum en þá bjóðum við alla pabba, afa, bræður og frændur velkomna til okkar í leikskólann frá kl 15:00-16:00. Við bjóðum uppá alíslenskan þorramat og kanilsnúða fyrir þá sem vilja og höfum það huggulegt saman.  Við ætlum að halda áfram að ræða gamla tímann og væri gaman ef börnin geta komið í lopapeysum í leikskólann.

Táknin fyrir næstu tvær vikur má finna HÉR

Bestu þorrakveðjur til ykkar

Guðbjörg, Sólveig, Bjössi, Anna Hlín og Marlena.

11. janúar 2012

Þá er lífið að komast í fastar skorður hjá okkur á Vinalundi. Allir að komast í rútínu aftur eftir gott jólafrí og skipulag farið að færast yfir starfið. Við stefnum á að fara í Kórinn einu sinni í viku ýmist með alla deildina eða hluta deildarinnar í einu. Við erum að leggja loka hönd á skipulagið hvað þetta varðar svo við látum ykkur vita hver niðurstaðan verður. Ferðirnar í Kórinn koma ekki í staðin fyrir vettvangsferðirnar okkar góðu heldur eru viðbót við þær enda ekkert skemmtilegra en góður göngutúr :) Reyndar hefur lítið verið um vettvangsferðir að undanförnu en við erum viss um að færðin fari að lagast og sólin fari að sjást oftar á lofti :) 

Það er margt spennandi framundan í janúar, á föstudaginn verður Dótadagur en þá meiga allir koma með dót í leikskólann. Við höfum tekið þá ákvörðum að dótadagar verða alltaf tvisvar á ári, í október og janúar. Við viljum bara minna ykkur á að merkja dótið sem börnin koma með. Föstudaginn 20. janúar ætlum við að halda bóndadaginn hátíðlegan, fá okkur þorramat og koma í lopapeysum í leikskólann. Við bjóðum pabba, afa, frændur og bræður velkomna í leikskólann í kaffi á milli kl 15:00-16:00. Föstudaginn 27. janúar er svo hin hefðbundna söngstund og hvítur dagur en þá væri frábært ef börnin gætu komið í einhverju hvítu.

Við viljum svo að lokum minna ykkur á að koma með hlý föt í leikskólann, það hefur verið kalt að undanförnu og mikill snjór. Börnin elska að vera úti í snjónum og því reynum við að fara út á hverjum degi að leika. Við eigum ekki aukaföt að lána börnunum og börnin fara út í þeim fatnaði sem þau koma með.

Bestu kveðjur

Guðbjörg, Sólveig, Bjössi og Marlena

 

2. janúar 2012

Gleðilegt ár og takk fyrir frábæra samvinnu á árinu sem er að líða :)

Það var mjög gott að koma til vinnu í morgun og hitta litlu krílin aftur eftir mjög kærkomið og notalegt jólafrí. Ég held að litlu krílin hafi ekki síður verið kát að koma aftur, allavegana léku allir sér alsælir saman í morgun. Morguninn fór rólega af stað og borðuðum við ekki ávextina fyrr en að verða 10:00 þar sem allir voru svo uppteknir að leika sér.

En nú er nýtt ár runnið upp og framundan fullt af skemmtilegum verkefnum. Janúarmánuður verður tileinkaður þorranum og ætlum við að fjalla um gamla siði og gamla tímann. Við ætlum líka að vinna með dyggðina kurteisi og velta fyrir okkur hvað það merkir að vera kurteis :) Við vonum að færðin batni svo við getum haldið áfram með vettvangsferðirnar okkar auk þess sem hreyfing, listir, hópastarf, könnunarleikurinn og fleira semmtilegt verður á dagskránni í janúar.

Á mánudaginn (9.janúar) byrjar hjá okkur nýr starfsmaður sem heitir Anna Hlín og er faglærður íþróttakennari og er að klára meistaranám nú í vor. Vinnutími Önnu Hlínar á Vinalundi er frá 8:30-15:30.

Táknin fyrir næstu tvær vikur má sjá HÉR

Bestu kveðjur

Guðbjörg, Sólveig, Bjössi og Marlena

 

10. desember 2011

Jóla hvað !!!

Dagarnir hafa verið viðburðarríkir á Vinalundi enda jólamánuðurinn genginn í garð. Hver dagur er fullur af skemmtilegri afþreyingu í bland við daglega rútínu í leik inni og úti. Nú hafa flest barnanna farið heim með jólagjafirnar sem þau hafa verið að búa til síðustu vikur. Á bakvið hverja gjöf eru margar vinnustundir en börnin gerðu gjöfina alveg frá grunni hvort sem um ræðir gjöfina sjálfa, pappírinn eða merkimiðann. Það má því með sanni segja að það sé mikill kærleikur í hverri gjöf J Börnin gera eina gjöf sem þau svo ráða hverjum þau gefa.

Bökunardagurinn rann upp bjartur og fagur en börnin biðu spennt eftir að fá að baka piparkökur. Börnin skemmtu sér konunglega og var framleiðslan mikil. Það var mikið hlegið af litlu krílunum en pipakökudeigið hvarf jafn óðum og það var sett hjá þeim og brostu þau um hæl með fullan munn af deigi J Eldri árgangurinn átti ekki til orð yfir þetta enda vissu þau alveg hvað ætti að gera þrátt fyrir að hafa verið í sömu sporum fyrir ári með kinnarnar úttroðnar ;) Allir skemmtu sér konunglega og árangurinn var jólailmur í húsið, fullir jóladunkar af kökum og alsæl börn.

Við fórum á jólaball á föstudaginn en krakkarnir úr 6.bekk komu og aðstoðuðu okkur að leiða litlar hendur yfir í Hörðuvallaskóla. Þar var dansað í kringum jólatréð og sungið jólalög greinilega svo hátt að tveir jólasveinar runnu á hljóðið og tóku þátt í dansinum með okkur. Jólasveinarnir kunnu ýmislegt skemmtilegt fyrir sér eins og að láta börn hverfa en sem betur fer kunnu þeir líka að láta þau birtast aftur ;) Börnin tóku sveinunum misvel en sum lítil hjörtu slógu töluvert hraðar við að sjá þá en við vorum með margar hjálparhendur í salnum til þess að lyfta þeim upp og gera þau örugg. Sum fóru aðeins fram en flest voru farin að dansa með jólasveinunum þegar líða fór á.

Eftir jólaballið var haldið aftur í leikskólann þar sem beið okkar hangikjöt með öllu tilheyrandi. Allir borðuðu á sig gat og sofnuðu svo vært í hvíldinni. Allir voru mjög þreyttir eftir viðburðaríkan dag og sofnuðu um leið og þau lögðu höfuðið á koddann.

Framundan er svo margt skemmtilegt, við ætlum að horfa á jólaleikrit í vikunni og fáum líka presta úr Lindasókn í heimsókn. Við ætlum líka að halda áfram að föndra og hlusta á jólalög. Við stefnum á strætóferð í vikunni þar sem við ætlum að skoða jólaljósin. En fyrst og fremst ætlum við njóta þess að vera til og passa uppá hvort annað. Við höldum okkar rútínu og leikum okkur saman inni og úti en þannig líður okkur líka best.

Táknin fyrir næstu tvær vikurnar má sjá HÉR

Á töflunni fyrir framan deildina er komið upp blað til þess að skrá mætingu barnanna á milli jóla og nýárs. Við viljum endilega biðja ykkur að fylla inn hvort barnið ykkar komi eða komi ekki á milli hátíðanna. Þetta er gert til þess að áætla matarinnkaup fyrir þessa daga og starfsmannahald yfir hátíðarnar.

Bestu jólakveðjur

Allir á Vinalundi

 

24. nóvember 2011

Það hefur verið í nógu að snúast hjá okkur síðustu vikur. Eldri hópurinn kláraði þemaverkefnið um kærleikinn, en þau bjuggu til kærleiksvini úr kærleikssteinunum sem þau fundu úti í náttúrinni fyrr í mánuðinum. Þetta var allt saman mjög skemmtilegt og spennandi og virkilega gaman að sjá hvað þau voru hugmyndarík þegar þau völdu efniviðinn til þess að líma á steinana. Flestir Kærleiksvinirnir fóru heim með börnunum samdægurs enda voru þau mjög upptekin af verkefninu.

Við höfum einnig verið að vinna verkefni með báða árgangana tengt Heilsubók barnsins. Þau eru öll búin að teikna sjálfsmynd, mynd af besta vininum sínum og svo eru þau búin að stimpla handa- og fótafar á blað. Nú eru Heilsubækurnar tilbúnar og er boðið uppá viðtalstíma á fimmtudögum fyrir þá foreldra sem vilja fara yfir bækurnar.  Við verðum svo með hefðbundin foreldraviðtöl í mars.

Á Degi íslenskrar tungu fengum við sex krakka úr 7.bekk í Hörðuvallaskóla í heimsókn. Þau komu til okkar eftir ávaxtastundina og lásu fyrir okkur þrjár bækur. Börnunum var skipt upp í tvo hópa og sátu þau eins og ljós meðan krakkarnir lásu fyrir þau sögurnar. Seinna um daginn sungum við saman í salnum með öllum börnunum í leikskólanum.

Síðustu daga höfum við verið að gera jólagjafirnar sem börnin taka með heim 9.desember eftir jólaballið. Börnin eru mjög spennt yfir þessu öllu saman og hafa vandað vel til verka J Gjafirnar eru núna klárar og ætlum við að pakka þeim inn í næstu viku. Svo er bara að láta sér hlakka til að opna pakkana á aðfangadagskvöld J

Á morgun ætlum við að halda fyrstu jólasöngstundina okkar í leikskólanum og byrjuðum við því í gær að syngja jólalögin. Það var gaman að sjá hvað eldri hópurinn mundi vel eftir jólalögunum og sungu hástöfum með. Litlu krílin verða fljót að ná þessu og eru strax farin að herma eftir þeim stóru. Við erum líka að setja lundinn okkar í jólabúninginn og er þetta allt saman ofur spennandi fyrir litla kroppa sem halda að jólin hljóti að vera komin því það er kominn smá snjór og jólaljós í gluggana J Við verðum svo með aðventustundir á föstudögum fram að jólum en elstu börnin í leikskólanum bjuggu til aðventukrans sem við komum til með að kveikja á saman J

Snjórinn er að vekja mikla lukku á Vinalundi en börnin vilja helst vera úti allan daginn að leika í snjónum. Við að sjálfsögðu skellum okkur því út tvisvar á dag ef börnin vilja og skemmtum okkur vel saman í snjónum.  

Það er svo nóg framundan hjá okkur á Vinalundi:

·         30.nóvember ætlum við að baka piparkökur

·         1.desember verður ljósalaus dagur en þá meiga börnin koma með vasaljós í leikskólann.

·         7. desember verður foreldrakaffi í leikskólanum en þá hittumst við og borðum piparkökur og eigum notalega stund saman.

·         9. desember verður jólaballið okkar í Hörðuvallaskóla og eftir jólaballið borðum við saman jólamat í leikskólanum. Jólagjafirnar fara heim þennan dag.

·         16. desember horfum við á Jólaleikrit í salnum með öllum leikskólanum.

Við gerum að sjálfsögðu margt fleira í desember en fyrirhuguð er strætóferð að skoða jólaljósin, við setjum upp jólasveinaverkstæði þar sem við föndrum og gerum ýmislegt jóla jóla og svo skreytum við sameiginlega jólatréð í leikskólanum J Við ætlum líka að knúsast og passa upp á hvort annað enda ekkert stress velkomið á Vinalund J

Tákn fyrir vikurnar 14-18 nóvember og 21-25 nóvember má sjá HÉR

Bestu aðventukveðjur

Guðbjörg, Sólveig, Bjössi og Marlena

 

3. nóvember 2011

Lífið gengur sinn vanagang á Vinalundi, dagskipulagið gengur vel og börnin eru farin að átta sig á rútínunni. Það virðist vera vinsælast um þessar mundir að fara í vettvangsferðirnar, enda svo margt spennandi að sjá í nágrenni leikskólans.

Í hópastarfinu hjá eldri árganginum erum við að vinna verkefni með kærleikssteina en rauði þráðurinn í starfi nóvember mánaðar er einmitt kærleikurinn. Við fórum því í vettvangsferð í vikunni þar sem börnin völdu sér sinn kærleiksstein til þess að taka með í leikskólann. Þetta var mjög skemmtilegt og gaman að sjá hvað börnin pössuðu vel uppá kærleikssteinana sína á heimleiðinni. Í næstu viku vinnum við svo áfram með þessa steina en við ætlum að líma á þá andlit og hár og þar með eru kærleikssteinarnir okkar orðnir að kærleiksvin. Það var mjög skemmtilegt að heyra útgáfur barnanna af orðinu kærleikur en þeim fannst þetta mörgum skrítið orð að læra. Sum sögðu kæfusteinn, önnur kælisteinn og svo heyrðist líka kæristeinn. En tilgangurinn er einmitt að reyna að kenna þeim orðið og fá þau til þess að tengja orðið við ákveðna athöfn. Hópastarf nóvember mánaðar er því tileinkað kærleik en við munum einnig koma inná glaðværðina og friðarþemað. Dagskrána í nóvember má nálgast HÉR.  

Yngri hópurinn er alltaf að verða duglegri að leika sér saman og við sjáum mikla þróun í leiknum hjá þeim. Þau eru núna farin að átta sig á hvernig leikföngin okkar virka og eru líka komin í meiri samleik. Við fáum alltaf nýtt dót á tveggja vikna fresti en allt dót sem er til í leikskólanum rúllar jafnt á milli deildanna í ákveðinni röð. Það er alltaf rosa spennandi þegar það kemur nýtt dót og gaman að sjá þau rannsaka það og átta sig á hvernig það virkar. Þau eru öll farin að átta sig vel á rútínunni, vita hvaða stól þau eiga í hádeginu og hvert þau eiga að fara eftir matatímann. Það er mjög gaman að sjá hvað þau eru fljót að tileinka sér þessa hluti. Þau eru líka farin að tengjast vinaböndum, sem er virkilega skemmtilegt að fylgjast með. Skemmtilegast finnst þeim flestum að syngja og eru þau rosalega dugleg að syngja með, mörg þeirra eru líka að reyna að gera táknin sem er virkilega skemmtilegt að sjá. Táknin fyrir næstu tvær vikurnar má nálgast HÉR.

Hreyfing og listir eru á sínum stað og finnst börnunum fátt skemmtilegra en þegar þær Hanna Sóley og Þóra birtast í dyrunum.  Við förum í Ævintýralundinn einu sinni í viku sem er ekkert lítið skemmtilegt en þar er margt forvitnilegt að sjá. Í Ævintýralundinum er eingöngu endurnýtanlegur efniviður og frábært að sjá hvað þau eru dugleg að leika sér með plastumbúðir, trjáafganga, tappa og fleira skemmtilegt.

Um þessar mundir erum við á fullu að fylla inn í heilsubækurnar. Fyrir áramót gera allir sjálfsmynd, þau teikna mynd af vini sínum og stimpla hendur og fætur á blað. Við erum langt komin með þetta allt saman og stefnum á að vera búin með allar heilsubækur um miðjan mánuðinn. Við munum svo auglýsa tíma þar sem foreldrar geta komið og kíkt á bækurnar en við verðum ekki með viðtöl í sama formi og undanfarin ár. Ykkur er þó að sjálfsögðu velkomið að panta viðtalstíma við okkur, við erum alltaf til í að spjalla við ykkur.

Núna fer skemmtilegasti tími ársins að ganga í garð, sjálfur jólaundirbúningurinn, við stefnum á að byrja í lok mánaðarins. Við eigum þó erfitt með að hemja okkur ;)

Bestu kveðjur frá okkur

Guðbjörg, Sólveig, Bjössi og Marlena

28. október 2011

Vikan er búin að vera viðburðarík hjá okkur á vinalundi, við byrjuðum vikuna á vettvangsferð með yngri hópinn (fædd 2009), allir voru rosalega duglegir að labba en aðal sportið var samt að fara í gul vesti eins og stóru krakkarnir J Á miðvikudaginn fórum við svo í frábæra bókasafnsferð með eldri hópinn (fædd 2008) og tókum við með okkur þrjú elstu börnin af yngra árinu. Ferðin gekk rosalega vel og eiga börnin ykkar hrós skilið fyrir hvað þau voru dugleg. Á bókasafninu var lesin fyrir okkur bangsasaga og svo fengum við að skoða bókasafnið og bækurnar sem þar eru. Heimleiðin gekk líka vonum framar en augnlok sumra barnanna voru ansi þung þegar fór að líða á ferðina J Í gær var svo bangsa og náttfatadagur með alvöru náttfataballi og fjöri og skemmtu allir sér konunglega. Í dag var svo appelsínugulur dagur með söngstund á sal og hamborgaraveislu í eftirrétt J  

 

Það eru komnar inn myndir af þessu öllu saman á:  /Deildir/Vinalundur/Myndir/ endilega kíkið á þær.

 

Bestu kveðjur

 

Vinalundabúar

20. október 2011

Tíminn flýgur áfram hjá okkur á Vinalundi enda höfum við í nógu að snúast. Haustlægðirnar hafa skollið á okkur hver á eftir annarri þannig að við höfum notið þess að vera inni í hlýjunni að leika saman. Við notum þó hvert tækifæri sem gefst til þess að fara út enda er það svo hollt og gott fyrir litla kroppa að hreyfa sig í fersku lofti. Við reynum alltaf að fara út einu sinni á dag enda eru krakkarnir á Vinalundi algjörir ofurhugar sem láta fátt stoppa sig J

Barnahópurinn á Vinalundi er alltaf að verða meira og meira samstilltur, nú eru allir farnir að kynnast svo vel og börnin farin að leika hvort við annað. Við sjáum vinatengsl myndast og erum alsæl með þróunina. Yngri hópurinn er farinn að kynnast þeim eldri og blandast börnin mjög vel. Allir fá að vera með og allir eru vinir. Við dáumst að eldri hópnum sem passar svo vel upp á yngri börnin og leyfir þeim að slást í leikinn og taka þátt. Við erum að sjálfsögðu öll vinir enda í vinaleikskóla J

Á þriðjudaginn fór eldri hópurinn í vettvangsferð, farin var góður hringur og komið við í Kórnum þar sem það var hlaupið um og skemmt sér. Á heimleiðinni var komið við í hesthúsunum en allir hestarnir voru inni í húsunum sínum svo við þurfum að reyna aftur seinna. Því miður brást myndavélin okkar svo við náðum bara að taka örfáar myndir. Yngri börnin voru í listasmiðju hjá Þóru á meðan og gerðu falleg listaverk. Nú eru yngri börnin farin að fara í vettvangsferðir líka, mun fyrr en við áætluðum enda algjörir ofurhugar eins og áður segir J Við förum þó í styttri ferðir og skoðum nánasta umhverfi leikskólans.

Á miðvikudag var svo stóravalið með krökkunum á Friðarlundi. Þá hittist 2008 árgangurinn og leikur sér saman. Við erum að skoða það að setja upp samskonar valstundir fyrir yngri börnin þegar líða fer á veturinn. Yngri hópurinn fer þangað til í svæðavinnu með kennara þar sem við lærum að leika okkur með efniviðinn í leikskólanum og með öðrum börnum.  Stóravalið gekk vonum framar, allir farnir að átta sig á fyrirkomulaginu og eru börnin mjög spennt yfir þessu öllu saman.

Nú er yngri hópurinn farin að læra leikskólalögin okkar og taka hátt og snjallt undir þegar við syngjum fyrir hádegismatinn. Þau eru svo ótrúlega dugleg að meðtaka textana og táknin sem við leggjum inn. Þau eru núna mörg hver búin að læra táknin fyrir litina og dagana fyrir utan táknin sem við leggjum inn vikulega.  Þessa vikuna lærðum við táknin fyrir rigningu og rok og í næstu viku ætlum við að læra táknin fyrir strák og stelpu. Táknin má sjá HÉR.

Nú erum við að byrja að gera verkefnin fyrir haustönnina í heilsubókina svo þið megið búast við að börnin ykkar komi heim með smá málningu á tásum og höndum.  Við sem sagt stimplum tásur og hendur barnanna á blað tvisvar á ári. Þannig má sjá svart á hvíta hvernig börnin ykkar eru að vaxa.

Við erum svo að plana strætóferðir með eldri árganginn. Við erum að stefna á að fara á Bókasafnið í næstu eða þarnæstu viku, þannig að endilega fylgist með. Yngri hópurinn fær líka að fara í strætó, en við erum að skoða það að fara jafnvel hring með þau í Desember. Þá tökum við strætóinn við Hörðuvallaskóla og förum um 20 mínútna hring að Mjóddinni og til baka. Við sem sagt tökum bara lítinn hring til þess að sjá strætóinn, prufa að sitja í honum og skoðum jólaljósin á leiðinni. Ef það er einhver sem er mótfallinn því að barnið sitt fari í Strætó þá má hann endilega tala við mig J

Að lokum langar okkur að minna ykkur á að hafa börnin ykkar ekki í sokkabuxum þegar þau eiga tíma í hreyfisalnum. Tímarnir hjá Hönnu Sóley eru þéttir og vel skipulagðir og mikill tími af þeirra tíma í hreyfisalnum með fagstjóra fer í að klæða þau úr og í ef þau eru í sokkabuxum. Hópaskipan í hreyfingu og listir má sjá HÉR.Bestu kveðjur frá okkur á Vinalundi

Guðbjörg, Sólveig, Bjössi og Marlena   

6. október 2011

Það hefur verið í nógu að snúast hjá krökkunum á vinalundi, nú er að koma reynsla á dagskipulagið sem fer vel af stað.

Á föstudaginn fórum við í fyrstu söngstund vetrarins þar sem öll börn leikskólans komu saman á sal skólans og sungu saman nokkur lög. Sungið var fyrir afmælisbörn mánaðarins og lagðist þetta allt saman mjög vel í mannskapinn. Á föstudaginn var líka blár dagur og gaman að sjá hversu margir komu í einhverju bláu.

Á mánudaginn fórum við í vettvangsferð með hluta af barnahópnum, við vorum mjög ánægð að sjá hvað allir höfðu mikið úthald í gönguferðinni en við fórum stærðarinnar hring nánast í kringum allt Kórahverfið. Við týndum laufblöð og fengum að hoppa á stóra trampólíninu hjá Guðbjörgu. Þau allra yngstu voru heima í rólegum leik og fóru í listasmiðju með Þóru og gerðu haustmyndir. Við förum mjög fljótlega að fara í vettvangsferð með þau út fyrir leikskólann, þau eru svo ótrúlega dugleg að við sjáum framá að fara fyrr af stað en við áætluðum.

Nú erum við komin af stað með könnunarleikinn og er alltaf jafn yndislegt að sjá börnin leika sér með endurnýtanlega efniviðinn. Könnunarleikurinn fer fram inná draumalundi þar sem börnin fá hver um sig eins poka með t.d lyklum, keðjum, dollum í ýmsum stærðum, eggjabakka, efnisbúta og margt fleira. Þau ráða hversu lengi þau leika sér en þau sitja mörg hver í meira en hálfa klst.

Á þriðjudaginn fóru eldri börnin (fædd 2008) í hópastarf. Þar var fundið nafn á hópana, allir sögðu hvað þeir hétu og frá fjölskyldunni en októbermánuður er tileinkaður „Ég sjálfur og vináttan“. Við teiknuðum sjálfsmynd og skoðuðum okkur í speglinum og veltum fyrir okkur á hvaða hátt við erum lík og ólík. Þetta gekk allt saman mjög vel og skemmtum við okkur vel yfir þessu öllu saman. Yngri hópurinn (fædd 2009) fór í svæðavinnu en í svæðavinnu leikum við okkur að ákveðnum efnivið í stutta stund í einu í litlum hóp. Kennari er til staðar sem sýnir börnunum hvernig leikföngin virka og hjálpar börnunum að leika saman. Stöðvarnar eru 3-4 með ýmsu skemmtilegu leikefni.

Á miðvikudaginn fóru eldri börnin í sameiginlegt val með jafnöldrum sínum á Friðarlundi. Í boði voru 7 stöðvar á Vinalundi, Friðarlundi og á bláagangi (Holukubbar, hlutverkaleikur, lita, snúningskubbar, lestin, púsl og H-kubbar og völdu börnin sér svæði. Börnin geta svo skipt um svæði þegar þau vilja en það er fyrirfram ákveðið hversu margir eru á hverjum stað og þannig læra þau að meta aðstæður hvort það sé laust o.s frv.

Á deildina okkar er svo kominn nýr starfsmaður en hún Bergrún okkar er að fara í fæðingarorlof. Hún heitir Marlena Anna en hún kemur frá Póllandi. Marlena er búin að búa á íslandi í 4 ár og skilur því og talar ágæta Íslensku. Marlena vinnur frá 8:30-16:30.

Við leggjum inn tvö tákn á viku í vetur og má sjá táknin fyrir þessa og næstu viku HÉR.

Bestu kveðjur frá okkur á Vinalundi

Guðbjörg, Sólveig, Bjössi og Marlena

Vetrarstarfið að hefjast

Nú er dagskipulagið fyrir skólaárið 2011-2012 komið á vefinn undir Vinalund og  „um deildina“. Við erum líka búin að setja inn á vefinn söngtexta sem við ætlum að styðjast við í vetur.  Lögin verða þó mun fleiri sem við lærum í vetur en þetta er svona brot af því besta.

Í síðustu viku byrjaði Björn (Bjössi) hjá okkur í fullu starfi frá 09:00-17:00 og bjóðum við hann velkominn til okkar. Sveinn minnkaði við sig í vinnu þar sem hann er að fara í skóla en verður eitthvað hjá okkur í vetur í afleysingum.

Síðustu vikur hafa farið í það að kynnast nýjum börnum og nýju starfsfólki og erum við öll að aðlagast mjög vel. Við sjáum fram á skemmtilegan og viðburðaríkan vetur en fyrst og fremst ætlum við að passa vel uppá hvort annað, vera góðir vinir og njóta þess að vera til. Þið eigið yndisleg börn sem okkur hlakkar mikið til að kynnast ennþá betur.

Ekki hika við að hafa samband við okkur ef eitthvað er annað hvort í síma 570-4941 eða í gegnum tölvupóstinn okkar vinalundur@kor.skolar.is . Að sjálfsögðu er ykkur velkomið að koma og spjalla við okkur á vinalundi eða panta viðtalstíma.

Hlökkum til vetrarins með ykkur

Guðbjörg, Sólveig, Bergrún og Bjössi.