skólar.is - Kór
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Að virða umsaminn vistunartíma barnanna

26.ágúst 2010

Kæru foreldrar

 

Við í Heilsuleikskólanum Kór leggjum ríka áherslu á að taka vel á móti börnum ykkar í byrjun hvers dags því eins og við vitum öll, skiptir miklu máli hvernig dagurinn byrjar. Sömu áherslur eru einnig í lok dags þegar kvatt er. Þegar börn hefja vistun er skrifað undir dvalarsamning og í honum er m.a. að finna upplýsingar um dvalartíma barnsins. Það er okkur mjög mikilvægt að farið sé eftir þeim umsamda dvalartíma því vinnutími starfsmanna er skipulagður með tilliti til dvalarsamninganna.

 

 

Til baka