news

Dagur leikskólans

05. 02. 2019

Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins miðvikudaginn 6. febrúar. Þetta er í tólfta skipti sem haldið er upp á daginn en 6. febrúar er merkilegur dagur í leikskólasögu þjóðarinnar því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Við hér á Heilsuleikskólanum Kór höldum upp á daginn með því að bjóða börnum úr 7 bekk í Hörðuvallaskóla að koma í heimsókn til okkar og lesa fyrir börnin.

© 2016 - Karellen