Krakkahestar í heimsókn
14. 06. 2021
Í dag komu Krakkahestar í heimsókn. Krakkarnir voru mjög spenntir. Öll börn sem vildu fengu hjálm og voru svo teymd einn hring á leikskólalóðinni á hestbaki. Flest börnin voru mjög áhugasöm um hestana og einn hesturinn pissaði meira að segja á grasið, börnin áttu ekki orð yfir því :-)
Kærar þakkir til Foreldrafélagsins fyrir að bjóða upp á Krakkahesta.