Stóðhesturinn Arion kíkti í heimsókn
21. 06. 2018
Í dag fimmtudaginn 21.06.18 kom til okkar merkur hestur í heimsókn.
Hann heitir Arion frá Eystra-Fróðholti og er einn hæðst dæmdi stóðhestur í heiminum og efsti hestur inná landsmót núna í júlí.
Vegna þessa þá kom Magnús Hlynur Heiðarsson frá sjónvarpinu til okkar og bjó til frétt um þennan atburð sem kemur síðan út í fréttunu á laugardag eða sunnudag.
Börnin fengu kíkja á hann og klappa honum. Allir skemmtu sér vel.