Heilsustefnan
Markmið heilsustefnunnar er fyrst og fremst að stuðla að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu. Í dag eru 11 heilsuleikskólar víðsvegar um landið sem hver um sig hefur sín einkenni og áherslur auk þeirra þriggja þátta sem einkennir heilsustefnuna. Þessir þættir eru hreyfing, listsköpun og næring.
Í heilsustefnunni er unnið markvisst með hreyfingu og listsköpun á þann hátt að öll börn fá skipulagðar stundir með sérhæfðum kennurum 1-2 sinnum í viku. Þessar stundir eru skipulagðar fyrirfarm og tengjast bæði þeim þáttum sem prófaðir eru í Heilsubók barnsins og áherslum leikskóla. Í næringu er lögð áhersla á hollt heimilisfæði þar sem markmiðið er að auka grænmetis og ávaxtaneyslu og að nota fitu, salt og sykur í hófi. Við samsetningu matseðla er tekið mið af markmiðum Lýðheilsustöðvar varðandi næringu barna.
Heilsubók barnsins mun hjálpa okkur að ná settum markmiðum. Hún er fjórtán blaðsíður sem hafa að geyma útfærð skráningablöð varðandi ýmsar upplýsingar um barnið. Skráð er heilsufar, hæð og þyngd, félagsleg færni, úthald, þekking á litum og formum, hreyfifærni, næring og svefn og færni í listsköpun (þróun teikninga osfr.). Skráningin fer fram tvisvar sinnum á ári, haust og vor og er foreldrum boðið í viðtal í kjölfarið. Skráningin gerir okkur kleift að fylgjast með þroskaframvindu barnsins og er einnig tæki til að upplýsa foreldra um stöðu þess í leikskólanum.