skólar.is - Kór
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

5 ára hópur

Í leikskólanum hittast elstu börnin fimm sinni í viku, 60 mínútur í senn. Unnið er í gegnum hópverkefni, einstaklingsverkefni, vettvangsferðir og umræður. Höfuðáhersla er lögð á að efla félagsfærni og sjálfstæði barnanna enda er það undirstaða frekara náms. Daglega fer fimm ára hópur í markvissa málörvun inni á deildum þar sem hljóðkerfisvitund barnanna er þjálfuð.
Sérstök áhersla er lögð á að leikurinn sé námsleið barnsins og eru hugmyndafræði og starfsaðferðir leikskólans lagðar til grundvallar því starfi.

Gott samstarf leikskóla og grunnskóla er mjög mikilvægt. Hörðuvallaskóli er hverfisgrunnskólinn og er hann staðsettur á móti leikskólanum og því stutt að fara. Mjög öflugt samstarf er á milli skólanna tveggja en börnin fara í vikuheimsókn í mars þar sem þau vinna ýmis verkefni ásamt fyrsta bekk. Útskriftarferð er í maí og er farin dagsferð í Vatnaskóg þar sem starfsmenn staðarins taka á móti börnunum með skipulagðri dagskrá. Í lok maí er hópurinn útskrifaður í sal leikskólans þar sem börnin sýna foreldrum skemmtiatriði, kennarar þakka fyrir samstarfið og boðið er upp á léttar veitingar. Í útskriftinni fá börnin afhent útskriftarmen, ferilmöppu og heilsubókina.