skólar.is - Kór
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Lífsleikni

Með lífsleikni er átt við hæfni til að takast á við lífið sjálft og má því segja að leikskólanámið sé í raun samfellt lífsleikninám. Til að öðlast lífsleikni þarf barn að læra umburðarlyndi í samskiptum og að bera virðingu fyrir öðrum og umhverfi sínu. Lífsleikni felst einnig í því að tileinka sér lífsgildi og reglur sem ríkja heima, í leikskólanum og í samfélaginu í heild. 
Vinátta og samkennd er dýrmætt veganesti og góður undirbúningur undir virka þátttöku í félgslífi og samstarfi síðar í lífinu.
Markmið lífsleikni er að starfsmenn séu meðvitaðir um aðferðir sem beita má til að draga úr steitu og hraða í umhverfinu og að stöðugt sé haft að leiðarljósi mikilvægi þess að skapa traust og öryggiskennd meðal barna og fullorðinna.