skólar.is - Kór
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita

Málrækt

Tungumálið er mikilvægasta tæki manna til samskipta. Rannsóknir sýna að markviss málörvun í leikskóla er mikilvæg undirstaða fyrir lestrarnám.
Í leikskólanum er lög áhersla á málörvun og er lestarhvetjandi umhverfi á öllum deildum. Ritmál er sýnilegt til dæmis eru hillur og leiksvæði barnanna merkt með orðum og myndum. Stafir eru aðgengilegir fyrir börnin á ýmsan máta og hafa þau gott aðgengi að bókum.
Í samverustundum eru lesnar sögur, sungið, kenndar þulur og vísur. Farið er í ýmsa orða- og hugtakaleiki, tjáningu og spjallað saman. Unnið er með málörvunarleiki og þrautir, einnig með hlustun, rím, samstöfur, stafi, hljóðgreiningu, setningar og orð. Stuðst er meðal annars við námsefnið Markviss málörvun, Tölum saman og Ljáðu mér eyra.