Velkomin í leikskólann
Við bjóðum ykkur foreldra/forráðamenn og barnið ykkar velkomin í Heilsuleikskólann Kór.
Leikskólinn var opnaður 1. júní 2006 og er einkarekinn af Skólum ehf. Hér gilda í meginþáttum sömu reglur og í öðrum leikskólum Kópavogsbæjar og fylgjum við sömu gjaldskrá.
Boðið er upp á sveigjanlegan vistunartíma, þ.e. 4,5,6,7,8 og 9 tíma, og síðan er hægt að kaupa svokallaða opnun og lokun sem er 30 mínútur fyrir og yfir umsamdan vistunartíma.
Leikskólinn er fyrir börn frá 18 mánaða aldri til 6 ára. Um það bil 20 börn eru á hverri deild og eru deildarnar, sem við köllum lundi, 6 talsins. Kærleikslundur, Tryggðarlundur og Gæðalundur eru öðru megin í húsinu, á gangi sem við köllum gulalund og eru þessir lundir með sameiginlegan fataklefa og salerni sem og rými fyrir framan deildarnar. Gleðilundur, Vinalundur og Friðarlundur eru hinum megin í húsinu, á gangi sem við köllum bláalund og eru þeir einnig með sameiginlegan fataklefa, salerni og rými fyrir framan deildarnar.
Í miðrými á bláalundi er hreyfisalur. Í miðju húsinu sem tengir saman bláalund og gulalund er lundur sem við köllum ævintýralundur. Þar er listasmiðjan okkar en einnig bókasafnið o.fl.
Kjörorð okkar er "heilbrigð sál í hraustum líkama".