Aðlögun
Að byrja í leikskóla er ný reynsla fyrir barnið og foreldra/forráðamenn þess. Nauðsynlegt er að gefa barninu nægan tíma til aðlögunar í upphafi leikskólagöngunnar þannig að það öðlist öryggistilfinningu. Barnið þarf góðan tíma til þess að kynnast leikskólanum, nýju umhverfi, starfsfólkinu og hinum börnunum. Á meðan á aðlöguninni stendur er mikilvægt að foreldrar/forráðamenn kynnist starfsfólki og því starfi sem fram fer í leikskólanum. Með því er lagður góður grunnur að framtíðinni.
Til þess að ná þessum markmiðum höfum við sérstakt aðlögunarferli sem foreldrum/forráðamönnum er kynnt í upphafi leikskólagöngunnar.
Þegar börn flytja á milli deilda er það aðallega í höndum starfsfólks að sjá um að það gangi vel fyrir sig og er sérstök áætlun sem farið er eftir.
Aðlögunaráætlun:
Fyrir 4 tíma vistun
Fyrir 5-7 tíma vistun
Fyrir 8-9 tíma vistun