skólar.is - Kór
Forsíða Senda fyrirspurn Prenta Stækka letur Eðlilegt letur Leita


Hagnýtar upplýsingar

Dvalarsamningur
Allir foreldrar skrifa undir dvalarsamning þegar barnið byrjar leikskólagöngu sína og biðjum við foreldra um að kynna sér ákvæði hans vel. Í honum er m.a. að finna upplýsingar um dvalartíma barnsins. Við viljum biðja foreldra um að fara ekki fram yfir þann tíma sem samið hefur verið um. Vinnutími starfsmanna er skipulagður með tilliti til dvalarsamninganna.

Dvalargjald
Gjöldin eru greidd fyrirfram og verða gíróseðlar sendir út. Greitt er fyrir einn mánuð í senn og gjald lækkar ekki þó barn sé fjarverandi. Skuldi foreldrar tvo mánuði er barninu sagt upp leikskólarýminu.
Gagnkvæmur uppsagnafrestur er einn mánuður og miðast við 1. og 15. hvers mánaðar. Hægt er að sækja um breytingar á vistunartímanum fyrir 15. hvers mánaðar. Eyðublöð fyrir uppsögn og breytingum fást hjá deildarstjóra.

Að koma og fara
Þegar barnið kemur í leikskólann á að fylgja því inn á sína lundi og afhenda starfsmanni og þegar barnið er sótt er mikilvægt að láta starfsmenn vita. Mjög mikilvægt er að foreldrar kveðji barnið. Upplýsingatöflur í fataklefum leikskólans eru ætlaðar til að koma upplýsingum á framfæri við foreldra/forráðamenn. Fylgist vel með upplýsingatöflunni.

Veikindi og fjarvistir
Vinsamlegast látið okkur vita ef barnið kemur ekki í leikskólann vegna veikinda eða af öðrum ástæðum. Eftir veikindi er barninu heimilt að vera inni í 1-2 daga ef aðstæður leyfa. Ef mannekla er þá getum við ekki boðið upp á þessa þjónustu. Við tökum ekki á móti börnum sem þurfa að vera inni vegna þess að þau eru alveg að verða veik. Börn eru smitberar á þeim tíma og geta því smitað önnur börn.  Læknar hafa staðfest að börn verða ekki veik af því að vera úti í fersku lofti og að börnum með kvef verður ekki meint af því.

Klæðnaður / Aukaföt
Mikilvægt er að klæðnaður barnanna sé þægilegur þannig að hann hefti ekki leikgleði þeirra.  Klæðið börnin eftir veðri en hafið það ætíð hugfast að börn hreyfa sig mikið við leik úti og geta því svitnað ef þau eru mikið klædd.  Nauðsynlegt  er að barnið hafi með sér aukafatnað og gott er að merkja fatnaðinn.  Í leikskólanum vinnum við með ýmis efni s.s. lím og málningu sem geta farið í föt barnanna þó svo starfsfólk leiti allra leiða til að svo verði ekki. Vinsamlegast takið tillit til þess.

Lyfjagjafir
Í samráði við HSS hafa verið gerðar reglur um lyfjagjöf í leikskóla.  Þar segir að eingöngu megi gefa astma- ofnæmis– og ofvirknilyf í leikskólum og þá eftir skriflegum fyrirmælum frá lækni. Lyfin eru geymd á öruggum stað og eru hér eyðublöð, sem þarf að skrá magn og notkun. Fúkkalyf sem börn taka í stuttan tíma á ekki að þurfa að gefa í leikskólanum. Að sögn lækna er nóg að gefa slík lyf með mjólk að morgni, þegar komið er heim og fyrir svefn. Reglur þessar eru settar til að stuðla að öryggi barna í leikskóla. Samkvæmt þessu megum við ekki gefa börnum önnur lyf en fyrr greinir og biðjum við foreldra að virða það

Börn að sækja börn
Samkvæmt tilskipun frá skólaskrifstofu Kópavogsbæjar er okkur ekki heimilt að afhenda börn í leikskólanum börnum undir 12 ára aldri. Biðjum við foreldra um að virða þessa reglu.

Óhöpp og slys
Börnin eru tryggð í leikskólanum.  Einn starfsmanna er öryggisfulltrúi leikskólans, sem hefur yfirumsjón með öryggismálum barnanna. Ef slys eða óhöpp verða eru þau skráð í slysaskýrslur, sem eru síðan notaðar til að athuga hvort slysagildrur eru í leikskólanum eða á
leiksvæðinu.

Foreldrasamstarf
Gott samstarf foreldra og leikskóla er forsenda fyrir góðri líðan barnsins í leikskólanum. Samvinna foreldra og leikskóla þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu og opnum samskiptum. Foreldrum er ávallt velkomið að dvelja í leikskólanum og taka þátt í starfinu. Foreldrafélag er við leikskólann.

Leikföng að heiman
Leikföng að heiman eru leyfð, en með mjög miklum takmörkunum. Leikföngin eru fyrst og fremst hugsuð til þess að vera barninu til traust og halds. Þess vegna beinum við því til foreldra að gera það ekki að reglu að barnið komi með leikfang, heldur sé það frekar gert þegar barnið þarf á því að halda. Stríðsleikföng eru ekki leyfð. Börnin mega koma með bækur, kassettur og geisladiska.  Engin ábyrgð er tekin á leikföngum að heiman.

Afmæli barnanna
Afmælisdagar barnanna eru stórir dagar í lífi þeirra og er að sjálfsögðu haldið upp á hann í leikskólanum. Þið þurfið ekki að koma með neinar veitingar þennan dag, en eruð sjálf velkomin að koma og taka þátt í gleðinni.
Afmælisbörnin fá að mála sér kórónu og velja sér búning. Afmælismynd er send til foreldra í tölvupósti. Ekki er í boði að koma með og dreifa boðskortum í leikskólanum.

Skipulags– og námskeiðsdagar
Skipulagsdagar eru 5 á ári. Skipulagsdaga notar starfsfólk til að skipuleggja, undirbúa og endurmeta starf sitt. Leikskólinn er lokaður á skipulagsdögum og eru þeir auglýstir með a.m.k. 4 vikna fyrirvara.

Sumarfrí
Sumarfríið er ákveðið í samræmi við Kópavogsbæ.

Starfsfólk leikskólans

Leikskólastjóri

er yfirmaður leikskóla og ber ábyrgð á rekstri leikskólans og að unnið sé eftir Aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans.

Aðstoðarleikskólastjóri
vinnur að daglegri stjórnun og skipulagningu ásamt leikskólastjóra og er staðgengill leikskólastjóra að honum fjarverandi.

Sérkennslustjóri

ber ábyrgð á skráningu fyrir börnin sem þurfa sérstaka aðstoð og býr til verkefni sem notuð eru í kennslu. Er í samskiptum við sérkennsluráðgjafa Kópavogsbæjar.

Deildarstjóri
ber ábyrgð á uppeldi og menntun barnahópsins á sinni deild. Hann ber einnig ábyrgð á foreldrasamstarfi á deildinni.

Kennarar
vinna í samstarfi við deildarstjóra að uppeldi og menntun barnanna.

Sérkennari
veitir börnum sem þurfa á sérkennslu að halda sérstaka aðstoð og kennslu og gætir þess að þau séu hluti af barnahópnum.

Matráður og starfsfólk í eldhúsi
sjá um samsetningu matseðla, innkaup, matartilbúning og þvotta.

Ræstitæknar
sjá um þrif.

Allt starfsfólk leikskólans er bundið þagnarskyldu og þær upplýsingar sem starfsmaður fær um barnið eru trúnaðarmál. Þagnarskylda helst þó látið sé af starfi.