Skólar ehf., einkarekið fyrirtæki í skólarekstri er rekstraraðili Heilsuleikskólans Kórs og er með þjónustusamning við Kópavogsbæ. Skólar ehf. var stofnað árið 2000 og sér um rekstur fimm leikskóla. Þeir eru auk Kórs; Heilsuleikskólinn Krókur í Grindavík, Heilsuleikskólinn Urriðaból í Garðabæ, Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík og Heilsuleikskólinn Skógarás í Reykjanesbæ.

Einkunnarorð Skóla ehf. eru "heilbrigð sál í hraustum líkama" og stefnir fyrirtækið að því að verða leiðandi í þekkingu og aðferðafræði heilsueflandi leikskólastarfs með heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins að leiðarljósi.

Skólar ehf.

© 2016 - Karellen