Heilsuleikskólinn Kór er við Baugakór 25 í Kópavogi. Skólar ehf. hafa verið með þjónustusamning við Kópavogsbæ frá því hann tók til starfa 1. júní 2006. Kór er 842 m2 að stærð og er byggingin eign Kópavogsbæjar.
Á leikskólanum eru tveir gangar 72 nemendum frá 18 mánaða aldri til sex ára. Gangarnir draga nafn sitt frá litum skólans og heita þeir Guli gangur og Blái gangur.
Leikskólinn Kór var vígður Heilsuleikskóli 1. desember 2008 og er kjörorð leikskólans „heilbrigð sál í hraustum líkama“.
Frá opnun leikskólans var mikill áhugi fyrir umhverfismennt en snemma árs 2010 var tekin meðvituð ákvörðun um að efla hana enn frekar í leikskólanum. Umhverfismennt fellur vel að Heilsustefnunni, að hugsa vel um umhverfi sitt til jafns við líkama og sál.
Á sex ára afmæli skólans þann 1. júní 2012 fékk skólinn afhentan Grænfánann í fyrsta sinn en í annað sinn þann 30. maí 2014, þriðja sinn árið 2016 og í fjórða sinn árið 2019.
Heilsuleikskólinn Kór fékk Umhverfisviðurkenningu árið 2012 frá Umhverfis- og samgöngunefnd Kópavogs fyrir framlag sitt til umhverfis og samfélags. Erum við afar stolt af þeirri viðurkenningu.
© 2016 - Karellen